Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Íslenskur stjórnmálaflokkur

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er vinstrisinnuð stjórnmálahreyfing á Íslandi sem var stofnuð þann 6. febrúar 1999. Auk hefðbundinnar félagshyggju og sósíalisma á hún margt sameiginlegt með græningjaflokkum Evrópu í stefnu sinni.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Fylgi 12,6%¹
FormaðurGuðmundur Ingi Guðbrandsson
VaraformaðurJana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir
ÞingflokksformaðurOrri Páll Jóhannsson
FramkvæmdastjóriRagnar Auðun Árnason
Stofnár1999
HöfuðstöðvarTúngötu 14, 101 Reykjavík
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
Félagshyggja, umhverfisvernd, kvenfrelsisstefna og friðarhyggja
Einkennisliturgrænn og rauður  
Sæti á Alþingi
Sæti í sveitarstjórnum
ListabókstafurV
Vefsíðawww.vg.is
¹Fylgi í síðustu Alþingiskosningum

Hreyfingin bauð fyrst fram í kosningum til Alþingis árið 1999 og fékk þá 6 menn kjörna en í kosningunum 2003 tapaði hún einum manni og hafði þá 5. Í Alþingiskosningunum árið 2007 jókst fylgi hreyfingarinnar verulega og fékk hún 9 þingmenn. Í Alþingiskosningunum árið 2009 voru 14 þingmenn kosnir á þing fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Í þingkosningum árið 2013 fékk hreyfingin 10,9% og 7 þingmenn, sem var ívið meira en kannanir höfðu gefið til kynna. Aðildarfélög hreyfingarinnar eru svæðisfélög hennar en einnig starfa innan hennar bæði Ung vinstri græn og Eldri vinstri græn. Félagar í VG eru nú um fimm þúsund talsins og er hreyfingin meðlimur Norræna Vinstri-Græna Bandalagsins.

Stjórn breyta

Tengd félög breyta

UVG breyta

Ung vinstri græn stofnuðu með sér formlegan samstarfsvettvang haustið 2000. Þó svo að Ung vinstri græn séu ungliðahreyfing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þá þýðir það ekki að UVG sé í einu og öllu sammála móðurflokknum. Þvert á móti hefur verið lögð á það mikil áhersla í starfi ungliðahreyfingarinnar að hún taki sjálfstæða afstöðu til allra mála því þannig veiti hún móðurflokknum best aðhald.

EVG breyta

Á haustdögum 2005 var ákveðið í samráði við Steingrím J. Sigfússon, að gera tilraun til að mynda hóp eldri borgara sem væru félagar eða stuðningsmenn Vinstri grænna. Eldri vinstri græn hittast að meðaltali einu sinni í mánuði.

Formenn breyta

FormennKjörinnHættiAldur við embættistöku
Steingrímur J. Sigfússon1999201344
Katrín Jakobsdóttir2013202437
Guðmundur Ingi Guðbrandsson2024Enn í embætti47

Varaformenn breyta

VaraformennKjörinnHætti
Svanhildur Kaaber19992003
Katrín Jakobsdóttir20032013
Björn Valur Gíslason20132017
Edward Huji­bens20172019
Guðmundur Ingi Guðbrandsson20192024
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir2024Enn í embætti

Landsfundir breyta

Landsfundur er æðsta vald flokksins en hann er haldinn á tveggja ára fresti. Á landsfundi er kosin stjórn flokksins og flokksráð. Í stjórn flokksins sitja 11 aðalmenn auk 4 varamanna og fer þessi hópur með daglega stjórn flokksins í samræmi við lög og samþykktir. Stjórnin hittist mánaðarlega. Flokksráð er æðsta vald flokksins milli landsfunda en það mynda aðal- og varamenn í flokksstjórn, þingmenn, varaþingmenn, sveitarstjórnarfulltrúar, formenn kjördæmisráða, formenn svæðisfélaga, fulltrúi ungliðahreyfingar flokksins og 40 fulltrúar sem kosnir eru sérstaklega af landsfundi. Varaformaður flokksstjórnar er jafnframt formaður flokksráðs.

Kjörtímabilið 2009 - 2013 breyta

Kjörfylgi VG fór úr 21,7% í kosningum 2009 í 10,9% árið 2013, sem jafngildir tæplega helmings fylgistapi. Á kjörtímabilinu var tekist á innanflokks um ýmis erfið deilumál sem hreyfingin þurfti að taka afstöðu til í ríkisstjórnarsamstarfi með Samfylkingunni (t.a.m. aðildarumsókn að Evrópusambandinu, Icesave og stjórnarskrármálið). Sögðu fjórir þingmenn hreyfingarinnar sig úr þingflokknum á kjörtímabilinu 2009 - 2013. Þá lét Guðfríður Lilja Grétarsdóttir af þingmennsku um áramótin 2012 - 2013. Í kosningunum 2013 tapaðist ekki síst fylgi út á landsbyggðinni. Í Norðvesturkjördæmi fékk flokkurinn 22,8% í kosningunum 2009 og þrjá þingmenn kjörna, þau Jón Bjarnason, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur og Ásmund Einar Daðason. Árið 2011 gekk Ásmundur Einar til liðs við Framsóknarflokkinn eftir deilur innan hreyfingarinnar um Icesave og Evrópusambandsumsóknina. Jón Bjarnason sagði sig úr þingflokki VG í upphafi árs 2013 og leiddi J-lista Regnbogans í Norðvesturkjördæmi í kosningunum 2013. VG fékk 8,5% atkvæða í kjördæminu árið 2013 og Lilja Rafney náði kjöri sem jöfnunarþingmaður. Í Norðausturkjördæmi vann VG ákveðinn varnarsigur, fékk tæp 16% atkvæða og tvo þingmenn kjörna. Í Suðurkjördæmi hrundi fylgi hreyfingarinnar úr 17,1% árið 2009 í 5,9% árið 2013. Það má að hluta til rekja til úrsagnar Atla Gíslasonar úr hreyfingunni. Í höfuðborginni blasti fylgistap einnig við flokknum. Hreyfingin missti einn þingmann í hvoru Reykjavíkurkjördæminu og hefur nú þrjá þingmenn í Reykjavík. Ögmundur Jónasson náði kjöri í Suðvesturkjördæmi. Þar fékk hreyfingin 7,9% atkvæða í kosningunum 2013 en hafði fengið 17,4% atkvæða í kosningunum 2009 þegar tveir menn náðu kjöri.

Staða hreyfingarinnar í dag breyta

Eins og staðan er í dag hefur Vinstrihreyfingin - grænt framboð 8 sveitarstjórnarfulltrúa í 6 sveitarfélögum auk þess sem að fjöldi félaga hefur tekið sæti á blönduðum listum sem víða fara með meirihlutavald.

Hreyfingin situr í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfisráðherra.

VG er í meirihluta í eftirfarandi sveitarfélögum:

Flokkurinn hefur verið gagnrýndur fyrir ósamræmi í stefnu og framkvæmd. Þannig hafi flokkurinn löngum haft úrsögn úr NATO á stefnuskrá en setið í ríkisstjórn á sama tíma og NATO gerði loftárásir á Líbyu árið 2011 og þannig borið pólitíska ábyrgð á þeim.[1]

Kjörfylgi breyta

Alþingiskosningar
KosningarAtkvæðiÞingsæti
19999,1%6
20038,8%5
200714,35%9
200921,68%14
201310,87%7
201615,9%10
201716,9%11
202112,6%8
Sveitarstjórnarkosningar
KosningarAtkvæðiFulltrúar
20026,7%3
200612,8%14
20109.6%15
201410.1%17
20188






Þingflokkur breyta

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er skipaður neðangreindum þingmönnum:

Heimildir breyta

  1. Bergþór Ólason (31. maí 2011). „Vinstrigrænir gera loftárásir“.

Tengt efni breyta

Tengill breyta