Norðausturkjördæmi

Norðausturkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það hefur 10 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Kjördæmið var sameinað úr kjördæmunum Norðurlandi eystra og Austurlandi með þeim undantekningum að Siglufjörður sem áður tilheyrði Norðurlandi vestra er í Norðausturkjördæmi en Hornafjörður sem áður var í Austurlandskjördæmi tilheyrir nú Suðurkjördæmi. Kjördæmið var búið til með nýrri kjördæmaskipan árið 2000. Fyrst var kosið samkvæmt nýrri kjördæmaskipan í Alþingiskosningum 2003.

Norðausturkjördæmi
Kort af Norðausturkjördæmi
Þingmenn
  •  • Kjördæmakjörnir
  •  • Jöfnunarmenn
  •  • Alls

  • 9
  • 1
  • 10
Mannfjöldi41.017 (2021)
Sveitarfélög17
Kjósendur
  •  • Á kjörskrá
  •  • Á hvert þingsæti

Kjörsókn80,9% (2021)
Núverandi þingmenn
1. Ingibjörg Ólöf Isaksen B 
2. Njáll Trausti Friðbertsson D 
3. Bjarkey Gunnarsdóttir V 
4. Líneik Anna Sævarsdóttir B 
5. Logi Einarsson S 
6. Berglind Ósk Guðmundsdóttir D 
7. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson M 
8. Jakob Frímann Magnússon F 
9. Þórarinn Ingi Pétursson B 
10. Jódís Skúladóttir V 

Kjördæmið hefur sem áður segir verið talið eitt höfuðvígi Framsóknarflokksins sem hefur nær alltaf átt fyrsta þingmann kjördæmisins (og þar áður á Norðurlandi eystra og Austurlandi) og ef ekki þann fyrsta þá annan. Vinstri græn hafa frá stofnun flokksins 1999 einnig fengið mest fylgi í Norðausturkjördæmi (og þar áður á Norðurlandi eystra) en það var heimakjördæmi fyrsta formanns flokksins, Steingríms J. Sigfússonar.

Í þeim sjö Alþingiskosningum sem hafa fram í núverandi kjördæmaskipan hafa bæði Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn þrisvar sinnum átt fyrsta þingmann Norðausturkjördæmis en Vinstri Græn einu sinni.

Sveitarfélög breyta

Í Norðausturkjördæmi eru sveitarfélögin: Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Múlaþing, Fljótsdalshreppur og Fjarðabyggð.

Kosningatölfræði breyta

KosningarKjósendur á
kjörskrá
BreytingGreidd
atkvæði
KjörsóknUtankjörfundar-
atkvæði
ÞingsætiKjósendur á
hvert þingsæti
Vægi[1]
FjöldiHlutfall
greiddra
200327.298á ekki við23.87787,5%2.41610,1%102.730123%
200727.881 58323.64484,8%3.48414,7%102.789126%
200928.352 47124.24985,5%3.64215,0%102.835128%
201329.035 68324.22783,4%4.37118,0%102.904130%
201629.564 52923.61379,9%4.46018,9%102.956132%
201729.620 5624.40982,4%5.92324,3%102.962133%
202129.887 22724.18080,9%--102.989135%
[1] Vægi atkvæða í Norðausturkjördæmi miðað við vægi atkvæða á landsvísu.
Heimild: Hagstofa Íslands

Þingmenn kjörnir úr kjördæminu breyta

Þingmenn kjörnir úr kjördæminu
Kosningar1.2.3.4.5.6.7.8.9.10.
2003Valgerður Sverrisdóttir  B Halldór Blöndal  D Kristján L. Möller  S Jón Kristjánsson  B Steingrímur J. Sigfússon  V Tómas Ingi Olrich  D Einar Már Sigurðarson  S Dagný Jónsdóttir  B Birkir Jón Jónsson  B Þuríður Backman  V 
2007Kristján Þór Júlíusson  D Valgerður Sverrisdóttir  B Kristján L. Möller  S Steingrímur J. Sigfússon  V Arnbjörg Sveinsdóttir  D Birkir Jón Jónsson  B Einar Már Sigurðarson  S Þuríður Backman  V Ólöf Nordal  D Höskuldur Þór Þórhallsson  B 
2009Steingrímur J. Sigfússon  V Birkir Jón Jónsson  B Kristján L. Möller  S Kristján Þór Júlíusson  D Þuríður Backman  V Höskuldur Þór Þórhallsson  B Sigmundur Ernir Rúnarsson  S Björn Valur Gíslason  V Tryggvi Þór Herbertsson  D Jónína Rós Guðmundsdóttir  S 
2013Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  B Kristján Þór Júlíusson  D Höskuldur Þór Þórhallsson  B Steingrímur J. Sigfússon  V Líneik Anna Sævarsdóttir  B Valgerður Gunnarsdóttir  D Kristján L. Möller  S Þórunn Egilsdóttir  B Bjarkey Gunnarsdóttir  V Brynhildur Pétursdóttir  A 
2016Kristján Þór Júlíusson  D Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  B Steingrímur J. Sigfússon  V Njáll Trausti Friðbertsson  D Þórunn Egilsdóttir  B Bjarkey Gunnarsdóttir  V Einar Aðalsteinn Brynjólfsson  P Valgerður Gunnarsdóttir  D Logi Már Einarsson  S Benedikt Jóhannesson  C 
2017Kristján Þór Júlíusson  D Steingrímur J. Sigfússon  V Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  M Þórunn Egilsdóttir  B Njáll Trausti Friðbertsson  D Logi Már Einarsson  S Bjarkey Gunnarsdóttir  V Anna Kolbrún Árnadóttir  M Líneik Anna Sævarsdóttir  B Albertína Friðbjörg Elíasdóttir  S 
2021Ingibjörg Ólöf Isaksen  B Njáll Trausti Friðbertsson  D Bjarkey Gunnarsdóttir  V Líneik Anna Sævarsdóttir  B Logi Már Einarsson  S Berglind Ósk Guðmundsdóttir  D Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  M Jakob Frímann Magnússon  F Þórarinn Ingi Pétursson  B Jódís Skúladóttir  V 

Tengill breyta