Mosfellsbær

sveitarfélag á höfuðborgarsvæði Íslands

Mosfellsbær (einnig kallaður Mosó í talmáli) er sveitarfélag sem liggur norðaustan við Reykjavík. Mosfellsbær varð til 9. ágúst 1987 þegar Mosfellshreppur varð að bæjarfélagi. Íbúar eru um 13.519 í apríl 2023.

Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær
Skjaldarmerki Mosfellsbæjar
Staðsetning Mosfellsbæjar
Staðsetning Mosfellsbæjar
Hnit: 64°10′N 21°43′V / 64.17°N 21.72°V / 64.17; -21.72
LandÍsland
KjördæmiSuðvesturkjördæmi
ÞéttbýliskjarnarMosfellsbær
Stjórnarfar
 • BæjarstjóriRegína Ásvaldsdóttir
Flatarmál
 • Samtals186 km2
 • Sæti47. sæti
Mannfjöldi
 (2024)
 • Samtals13.403
 • Sæti7. sæti
 • Þéttleiki72,06/km2
Póstnúmer
270, 271
Sveitarfélagsnúmer1604
Vefsíðamos.is

Síðan 1933 hefur heitt vatn verið leitt úr Mosfellsbæ og til Reykjavíkur. Ullarvinnsla var mikilvæg grein í bænum og var þar framleiðsla við Álafoss frá 1919 til 1955. Nú er þar meðal annars aðsetur listamanna.

Íþróttir og afþreying breyta

Í Mosfellsbæ er íþróttafélagið Afturelding. Tvær sundlaugar eru í Mosfellsbæ: Varmárlaug og Lágafellslaug. Göngustígar eru við Álafosskvos og við Reykjalund. Skógrækt og gönguleiðir eru við Úlfarsfell.

Bæjarstjórn breyta

Í bæjarstjórn Mosfellsbæjar sitja 11 fulltrúar sem kjörnir eru í hlutfallskosningu á fjögurra ára fresti. Síðast var kosið til bæjarstjórnar í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí 2022.

Vinabæir breyta

Heiðursborgarar breyta

Þrír einstaklingar eru heiðursborgarar Mosfellsbæjar:[1]

Mosfellingur ársins breyta

Bæjarblaðið Mosfellingur hefur staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins síðan 2005. Blaðið kynnir Mosfelling ársins í fyrsta tölublaði hvers árs. Sautján einstaklingar hafa hlotið nafnbótina Mosfellingur ársins:[8]

ÁrNafn
2023Halldór Laxness HalldórssonSkemmtikraftur og höfundur, betur þekktur sem Dóri DNA
2022Halla Karen KristjánsdóttirÍþrótta­fræð­ing­ur og formað­ur bæj­ar­ráðs Mos­fells­bæj­ar
2021Elva Björg PálsdóttirForstöðumaður félagsstarfs eldri borgara
2020Sigmar VilhjálmssonSjónvarps-, fjölmiðla- og athafnamaður
2019Hilmar ElíssonBjargaði manni frá drukknun
2018Óskar VídalínStofnandi Minningarsjóðs Einars Darra
2017Jón Kalman StefánssonRithöfundur
2016Guðni Valur GuðnasonKringluskastari og Ólympíufari
2015Sigrún Þuríður GeirsdóttirFyrsta íslenska konan til að synda Ermarsundið
2014Jóhanna Elísa EngilhartsdóttirFyrsti sigurvegari í Biggest Loser á Íslandi
2013Hljómsveitin Kaleo
2012Gréta SalómeSöngkona og fiðluleikari
2011Hanna SímonardóttirAthafnakona
2010Steindi Jr.Skemmtikraftur og sjónvarpsmaður
2009Embla ÁgústsdóttirHeimsmethafi í flugsundi
2008Albert RútssonAthafnamaður og hóteleigandi
2007Jóhann Ingi GuðbergssonBjargaði tveggja ára barni í Lágafellslaug
2006Hjalti Úrsus ÁrnasonAfreksmaður í kraftlyftingum
2005Sigsteinn PálssonFyrrverandi bóndi á Blikastöðum

Myndir breyta

Tilvísanir breyta

  1. Heiðursborgari Mosfellsbæjar, vefsíða Mosfellsbæjar, sótt 5. júní 2017
  2. Halldór Laxness heiðursborgari Mosfellshrepps, Morgunblaðið, 22. apríl 1972, bls. 2
  3. Kraftaskáld vorra tíma, Morgunblaðið, 3. maí 1972, bls. 11
  4. Jón M. Guðmundsson (minningargrein), Morgunblaðið, 7. maí 2009, bls. 29
  5. Heiðursborgari í Mosfellsbæ, Morgunblaðið, 31. október 2000, bls. 10
  6. Salome Þorkelsdóttir, vefsíða Alþingis, sótt 5. júní 2017
  7. Salóme gerð að heiðursborgara í Mosfellsbæ, Morgunblaðið, 10. ágúst 2007, bls. 2
  8. Mosfellingur ársins[óvirkur tengill], vefsíða Mosfellsbæjar, sótt 16. febrúar 2022

Tenglar breyta