Norðvesturkjördæmi

Norðvesturkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það er fámennasta kjördæmið og hefur átta sæti á Alþingi, þar af eitt jöfnunarsæti. Kjördæmið varð til þegar fyrrverandi kjördæmin Vesturland, Vestfirðir og Norðurland vestra voru sameinuð með nýrri kjördæmaskipan árið 2000 með þeirri undantekningu að Siglufjörður sem áður tilheyrði Norðurlandi vestra tilheyrir nú Norðausturkjördæmi. Fyrst var kosið samkvæmt nýrri kjördæmaskipan í Alþingiskosningum 2003.

Norðvesturkjördæmi
Kort af Norðvesturkjördæmi
Þingmenn
  •  • Kjördæmakjörnir
  •  • Jöfnunarmenn
  •  • Alls

  • 7
  • 1
  • 8
Mannfjöldi31.405 (2021)
Sveitarfélög26
Kjósendur
  •  • Á kjörskrá
  •  • Á hvert þingsæti

Kjörsókn82% (2021)
Núverandi þingmenn
1. Stefán Vagn Stefánsson B 
2. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir D 
3. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir B 
4. Bjarni Jónsson V 
5. Haraldur Benediktsson D 
6. Eyjólfur Ármannsson F 
7. Halla Signý Kristjánsdóttir B 
8. Bergþór Ólason M 

Upphaflega var fjöldi þingsæta í kjördæminu ákveðinn 10 sæti en fjöldi á kjörskrá á bak við hvern þingmann var aðeins 2.150 í kosningunum 2003 sem var meira en helmingi minna en í Suðvesturkjördæmi þar sem sami fjöldi var 4.440. Fluttist því eitt þingsæti frá Norðvesturkjördæmi til Suðvesturkjördæmis fyrir Alþingiskosningarnar 2007 í samræmi við ákvæði í kosningalögunum. Sama staða kom upp í kjölfar Alþingiskosninganna 2009 en þá var fjöldi kjósenda á bak við hvern þingmann kjördæmisins 2.366 á meðan þeir voru 4.850 í Suðvesturkjördæmi. Fluttist því eitt þingsæti til viðbótar frá Norðvesturkjördæmi til Suðvesturkjördæmis fyrir Alþingiskosningarnar 2013 í samræmi við ákvæði í kosningalögum.

Sveitarfélög breyta

Eftirfarandi sveitarfélög eru í Norðvesturkjördæmi: Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Húnaþing vestra, Húnabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.

Kosningatölfræði breyta

KosningarKjósendur á
kjörskrá
BreytingGreidd
atkvæði
KjörsóknUtankjörfundar-
atkvæði
ÞingsætiKjósendur á
hvert þingsæti
Vægi[1]
FjöldiHlutfall
greiddra
200321.247á ekki við18.98489,3%1.6908,9%102.125158%
200721.126 12118.17886,0%2.73515,0%92.347150%
200921.293 16718.21485,5%2.45013,5%92.366153%
201321.318 2517.82583,6%3.14517,6%82.665142%
201621.481 16317.44481,2%3.14918,1%82.685146%
201721.521 4017.87283,0%3.48319,5%82.690147%
202121.548 2717.66982,0%--82.694150%
[1] Vægi atkvæða í Norðvesturkjördæmi miðað við vægi atkvæða á landsvísu.
Heimild: Hagstofa Íslands

Þingmenn kjörnir úr kjördæminu breyta

Þingmenn kjörnir úr kjördæminu
Kosningar1.2.3.4.5.6.7.8.9.10.
2003Sturla Böðvarsson  D Jóhann Ársælsson  S Magnús Stefánsson  B Einar K. Guðfinnsson  D Guðjón A. Kristjánsson  F Anna Kristín Gunnarsdóttir  S Kristinn H. Gunnarsson  B Jón Bjarnason  V Einar Oddur Kristjánsson  D Sigurjón Þórðarson  F 
2007Sturla Böðvarsson  D Guðbjartur Hannesson  S Magnús Stefánsson  B Jón Bjarnason  V Einar K. Guðfinnsson  D Guðjón A. Kristjánsson  F Karl V. Matthíasson  S Einar Oddur Kristjánsson  D Kristinn H. Gunnarsson  B 
2009Ásbjörn Óttarsson  D Jón Bjarnason  V Guðbjartur Hannesson  S Gunnar Bragi Sveinsson  B Einar K. Guðfinnsson  D Lilja Rafney Magnúsdóttir  V Ólína Þorvarðardóttir  S Guðmundur Steingrímsson  B Ásmundur Einar Daðason  V 
2013Gunnar Bragi Sveinsson  B Einar K. Guðfinnsson  D Ásmundur Einar Daðason  B Haraldur Benediktsson  D Guðbjartur Hannesson  S Elsa Lára Arnardóttir  B Jóhanna María Sigmundsdóttir  B Lilja Rafney Magnúsdóttir  V 
2016Haraldur Benediktsson  D Gunnar Bragi Sveinsson  B Þórdís K. R. Gylfadóttir  D Lilja Rafney Magnúsdóttir  V Eva Pandóra Baldursdóttir  P Teitur Björnsson  D Elsa Lára Arnardóttir  B Guðjón Brjánsson  S 
2017Haraldur Benediktsson  D Ásmundur Einar Daðason  B Lilja Rafney Magnúsdóttir  V Bergþór Ólason  M Þórdís K. R. Gylfadóttir  D Guðjón Brjánsson  S Halla Signý Kristjánsdóttir  B Sigurður Páll Jónsson  M 
2021Stefán Vagn Stefánsson  B Þórdís K. R. Gylfadóttir  D Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir  B Bjarni Jónsson  V Haraldur Benediktsson  D Eyjólfur Ármannsson  F Halla Signý Kristjánsdóttir  B Bergþór Ólason  M 

Tengill breyta