Tottenham Hotspur F.C.

Tottenham Hotspur er knattspyrnulið í ensku úrvalsdeildinni og er frá norður-London. Guðni Bergsson og Gylfi Þór Sigurðsson hafa spilað með félaginu.

Tottenham Hotspur F.C.
Fullt nafnTottenham Hotspur F.C.
Gælunafn/nöfnSpurs, Lilywhites
Stytt nafnTottenham Hotspur
Stofnað1882, sem Hotspur F.C.
LeikvöllurTottenham Hotspur Stadium
Stærð62.062
StjórnarformaðurFáni Englands Daniel Levy
KnattspyrnustjóriAnge Postecoglou
DeildEnska úrvalsdeildin
2022-20238. sæti
Heimabúningur
Útibúningur

Saga breyta

Tengsl Tottenham við gyðinga breyta

Tottenham Hotspur hefur lengi átt farsælt samband við gyðingasamfélagið í Tottenham hverfinu í London. Samfélagið óx hratt umaldamótin 1900 vegna þess að gyðingar frá Rússneska keisaradæminu flúðu ofsóknir þar í landi. Margir enduðu í Bretlandi og komu sér vel fyrir í London þar sem þeir gátu haldið í menningu sína og siði. Margi fluttu lengra norður á London svæðinu og í Tottenham hverfinu voru næg atvinnutækifæri. Áhrifamenn í samfélagi gyðinga hvöttu þá til að flytjast frá troðfullu Whitechapel og Brick Lane til Tottenham. Næstu 30 til 40 árin fléttaðist Tottenham Hotspurs við líf gyðinga af verkamannastétt í hverfinu sem voru fjölmennir í götum milli Hale og Landsdowne Road. Fyrir marga gyðinga var mikilvægt að aðlgast Bretlandi og fótbolti mikilvægur þáttur í því ferli. Margir kynslóðir breskra gyðinga hafa síðan þá fæðst og alist upp sem stuðningsmenn Tottenham Hotspur.

Stuðningsmenn Tottenham hafa lengi talað um sjálfa sig sem gyðingaher (e. Yid Army) sem er umdeilt og hefur liðið beðið stuðningsmenn um að hætta að nota þetta orð þar sem það er talið niðrandi fyrir gyðinga.

Sumarið 2023 Manor Solomon keyptir til Tottenham Hotspur og var hann fyrsti gyðingurinn sem spilaði fyrir félagið í 16 ár.  

Titlar breyta

KeppniTitlarÁr
Enskir meistarar21950/51, 1960/61
Enskir bikarmeistarar81901, 1921, 1961, 1962, 1967, 1981, 1982, 1991
Enskir deildabikarmeistarar4 1971, 1973, 1999, 2008
Samfélagsskjöldurinn71921, 1951, 1961, 1962, 1967, 1981, 1991
Evrópukeppni bikarhafa11962/63
Evrópukeppni félagsliða 21971/1972, 1983/1984
FA Youth Cup31970, 1974, 1990

Þjálfarar hjá Tottenham breyta

  • Feitletruðu stafirnir segja til um tímann sem þeir voru stjórar hjá Tottenham Hotspur:
  • (C) – Bráðabirgðastjóri (Caretaker)
  • (FTC) – þjálfari

Leikmaður ársins breyta

Íslendingar sem hafa spilað með félaginu breyta