Enski bikarinn

Enski bikarinn eða F.A. Cup er elsta bikarkeppni í fótbolta í heimi en hún var stofnuð árið 1871. Í bikarnum hafa mest keppt 763 lið og er þar lið úr úrvalsdeild, þremur deildum ensku knattspyrnudeildarinnar og hundruðir utandeildarliða. Undanúrslitin og úrslitaleikurinn eru haldin á Wembley. Sigurvegararnir fara beint í riðil í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu.

Lið Blackburn Rovers frá 1883-1884.
Arsène Wenger hefur unnið til flesta bikartitla.

Manchester City eru núverandi meistararar (2023).

Fyrrum þjálfari Arsenal, Arsene Wenger hefur unnið flesta bikartitla, alls 7 sinnum.

Saga breyta

Nítjánda öldin breyta

Charles W. Alcock, þá nýkjörinn formaður Enska knattspyrnusambandsins, lagði sumarið 1871 fram tillögu um að stofna til meistaramóts á vegum sambandsins þar sem aðildarfélögum gæfist færi á að keppa. Skipuð var undibúningsnefnd og fór fyrsta viðureign hinnar nýju bikarkeppni fram í nóvember sama ár. Þrettán leikum síðar voru Wanderers krýndir sem fyrstu bikarmeistarar. Árið eftir fengu ríkjandi meistararnir sjálfkrafa þátttökurétt í úrslitaleiknum, en eftir það var horfið frá þeirri reglu og bikarmeistarar fyrra árs hófu keppni um leið og önnur lið.

Árið 1875 þurfti í fyrsta sinn að endurtaka úrslitaleik eftir að Royal Engineers og Old Etonians skildu jöfn. Fóru báðar viðureignirnar fram á Kennington Oval eins og velflestir úrslitaleikir þeirra ára.

Núverandi keppnistilhögun fór að taka á sig mynd leiktíðina 1888-89 þegar komið var á svæðisbundinni forkeppni, sama ár og ensku deildarkeppninni var komið á legg. Sama ár tókst utandeildarliðinu Warwick County að slá Stoke City F.C. úr keppni, en óvænt úrslit af þeim toga hafa alla tíð verið talin hluti af töfrum bikarsins.

Ellefu fyrstu skiptin sem keppt var í ensku bikarkeppninni fóru lið skipuð yfirstéttarmönnum sem numið höfðu leikinn í enskum einkaskólum. Þessi lið lögðu ríka áherslu á áhugamennskuhugsjónina, enda meðlimir þeirra úr röðum efnafólks og þurftu ekkert á greiðslum að halda fyrir að spila fótbolta. Árið 1883 vann fyrsta liðið frá norðanverðu Englandi keppnina, Blackburn Olympic. Liðin úr norðrinu komu frá verkamannaborgum og voru oftar en ekki í eigu verksmiðjueigenda sem vildu sjá starfsfólki sínu fyrir afþreyingu. Leikmenn þessara voru úr efnaminni stéttum og þáðu yfirleitt laun fyrir að keppa, þótt það yrði framan af að gerast undir borðið. Eftir að atvinnumennskan ruddi sér almennilega til rúms hættu áhugamannaliðin í suðrinu að eiga nokkra möguleika á sigri í keppninni og hættu þau eitt af öðru þátttöku í henni.

1901-50 breyta

Tottenham varð fyrsta bikarmeistaralið tuttugustu aldar eftir sigur á Sheffield United í endurteknum úrslitaleik. Fyrri viðureignin braut blað í sögunni þar sem áhorfendur voru meira en 100 þúsund talsins. Með sigrinum varð Tottenham eina utandeildarliðið til að fara með sigur af hólmi eftir stofnun ensku deildarinnar.

Enska bikarkeppnin var haldin leiktíðina 1914-15 og lauk með sigri Sheffield United að viðstöddum fjölmörgum einkennisklæddum hermönnum. Harðar deilur spruttu vegna þeirrar ákvörðunar Enska knattspyrnusambandsins að halda áfram keppni þrátt fyrir að fyrri heimsstyrjöldin hefði brotist út. Töldu ýmsir óviðeigandi að fullfrískir karlmenn kepptu i fótbolta á meðan landið stæði í stríði. Knattspyrnusambandið lét undan þrýstingnum og felldi niður keppni þar sem eftir var stríðsins og það sama gilti á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.

Árið 1923 fóru úrslitin í fyrsta sinn fram á Wembley, þar sem Bolton og West Ham mættust. Opinberar tölur herma að um 126 þúsund manns hafi mætt á leikinn, sem samsvaraði þeim áhorfendafjölda sem völlurinn var talinn rýma. Viðstöddum ber þó saman um að miklu fleiri hafi troðið sér inn á völlinn, jafnvel allt að 200 þúsund manns.

Leiktíðina 1925-26 var tekið upp á þeirri nýbreytni að lið úr tveimur efstu deildunum hófu ekki keppni fyrr en í þriðju umferð bikarsins og hefur sú tilhögun haldist til þessa dags. Sama ár voru núgildandi rangstöðureglur teknar upp í keppninni. Árið eftir varð Cardiff City fyrsta og eina félagið utan Englands til að vinna keppnina, en félög frá Wales hafa löngum verið meðal þátttökuliða.

Hörmulegur atburður átti sér stað í bikarleik milli Bolton og Stoke City árið 1946 þar sem 33 áhorfendur létust eftir að hafa troðist undir. Þrátt fyrir blóðbaðið var ákveðið að ljúka leiknum og var sú ákvörðun fordæmd af mörgum.

1951-2000 breyta

Bikarúrslitaleikurinn 1953 varð sögufrægur, ekki hvað síst vegna þátttöku Stanley Matthews sem var 38 ára gamall. Hann hafði tvívegis tapað í úrslitum en náði loks að lyfta bikarnum eftir 4:3 sigur Blackpool á Bolton Wanderers, sem misst hafði tvo leikmenn meidda af velli með 3:1 forystu. Þetta var ekki eini úrslitaleikurinn í sögu keppninnar þar sem meiðsli leikmanna höfðu áhrif á úrslit leikja, þannig beinbrotnuðu leikmenn í fimm úrslitaleikjum á árunum 1957-65. Það var ekki fyrr en leiktíðina 1966-67 að skiptingar voru heimilaðar í bikarkeppninni.

Árið 1970 var í fyrsta sinn keppt um bronsverðlaun í bikarkeppninni, þar sem Manchester United og Watford mættust. Áhugi leikmanna og áhorfenda á keppninni um þriðja sætið reyndist takmarkaður og í síðasta sinn var keppt um titilinn vorið 1974.

Hundraðasti bikarúrslitaleikurinn fór fram árið 1981, milli Tottenham og Manchester City.

Leiktíðina 1990-91 þurfu Arsenal og Leeds United að mætast fjórum sinnum í viðureign sinni í fjórðu umferð. Í kjölfarið ákvað Enska knattspyrnusambandið að önnur viðureign félaga skyldi ráðast með vítaspyrnukeppni í stað nýs leiks til að koma í veg fyrir fjölgun leikja. Sama ár var farið að halda undanúrslitaleiki á Wembley.

Fyrsta vítaspyrnukeppnin í sögu bikarkeppninnar var á milli Scunthorpe United og Rotherham United og lauk með 6:7 sigri þeirra síðarnefndu. Nokkur ár liðu enn áður en vítaspyrnukeppnir voru teknar upp í forkeppni bikarsins.

Árið 1999 var undanúrslitaviðureign endurtekin í síðasta sinn. Upp frá því var ákveðið að grípa skyldi til vítaspyrnukeppni í lok allra undanúrslitaleikja og úrslitaleikja ef þurfa þætti. Sama ár varð keppnin fyrir áfalli þegar ríkjandi meistarar, Manchester United, ákváðu að senda ekki lið til leiks vegna þátttöku í Heimsmeistarakeppni félagsliða. Þess í stað var dregið út taplið úr 2. umferð keppninnar og varð Darlington því fyrsta liðið í sögu keppninnar til að tapa tvívegis á sömu leiktíð.

2001- breyta

Fyrstu ár 21. aldarinnar var brotið blað í sögu ensku bikarkeppninnar þar sem úrslitaleikurinn fór fram utan Englands, nánar tiltekið á Millennium Stadium í Wales á árunum 2001-06 á meðan unnið var að endurbótum á Wembley. Frá og með 2008 hafa undanúrslitaleikir einnig farið fram á Wembley.

Aukið leikjaálag í deild og í alþjóðakeppnum, auk minnkandi áhuga á bikarkeppninni, hefur orðið til þess að jafnt og þétt hefur verið fækkað þeim umferðum í keppninni þar sem gripið er til nýs leiks lið skilja jöfn, heldur hefur verið farið beint í framlengingu og vítaspyrnukeppni.

Segja má að valdasamþjöppun hafi átt sér stað í bikarnum líkt og á öðrum sviðum enskrar knattspyrnu á 21. öld. Manchesterliðin tvö, Liverpool, Arsenal og Chelsea hafa deilt með sér nær öllum titlunum. Á því eru þó tvær undantekningar: Portsmouth varð bikarmeistari 2008 og Wigan árið 2013. Í báðum tilvikum reyndust sigrarnir þó skammgóður vermir þar sem félögin lentu í miklum fjárhagsvandræðum og féllu niður um deildir beint í kjölfarið.

Úrslitaleikir breyta

Úrslitaleikir bikarkeppninnar
LeiktíðSigurvegararÚrslit2. sætiLeikvangur
1871-72Wanderers1:0Royal EngineersKennington Oval
1872-73Wanderers2:0Oxford UniversityLillie Bridge
1873-74Oxford University2:0Royal EngineersKennington Oval
1874-75Royal Engineers1:1, 2:0 (aukaleikur)Old EtoniansKennington Oval
1875-76Wanderers1:1, 3:0 (aukaleikur)Old EtoniansKennington Oval
1876-77Wanderers2:1 (e. framl.)Oxford UniversityKennington Oval
1877-78Wanderers3:1Royal EngineersKennington Oval
1878-79Old Etonians1:0Clapham RoversKennington Oval
1879-80Clapham Rovers1:0Oxford UniversityKennington Oval
1880-81Old Carthusians3:0Old EtoniansKennington Oval
1881-82Old Etonians1:0Blackburn RoversKennington Oval
1882-83Blackburn Olympic2:1 (e. framl.)Old EtoniansKennington Oval
1883-84Blackburn Rovers2:1 Queen's ParkKennington Oval
1884-85Blackburn Rovers2:0 Queen's ParkKennington Oval
1885-86Blackburn Rovers0:0, 2:0 (aukaleikur)West Bromwich AlbionRacecourse Ground
1886-87Aston Villa2:0West Bromwich AlbionKennington Oval
1887-88West Bromwich Albion2:1Preston North EndKennington Oval
1888-89Preston North End3:0Wolverhampton WanderersKennington Oval
1889-90Blackburn Rovers6:1The WednesdayKennington Oval
1890-91Blackburn Rovers3:1Notts CountyKennington Oval
1891-92West Bromwich Albion3:0Aston VillaKennington Oval
1892-93Wolverhampton Wanderers1:0EvertonFallowfield Stadium
1893-94Notts County4:1Bolton WanderersGoodison Park
1894-95Aston Villa1:0West Bromwich AlbionCrystal Palace
1895-96The Wednesday2:1Wolverhampton WanderersCrystal Palace
1896-97Aston Villa3:2EvertonCrystal Palace
1897-98Nottingham Forest3:1Derby CountyCrystal Palace
1898-99Sheffield United4:1Derby CountyCrystal Palace
1899-90Bury4:0SouthamptonCrystal Palace
1900-01Tottenham Hotspur2:2, 3:1 (aukaleikur)Sheffield UnitedCrystal Palace / Burnden Park
1901-02Sheffield United1:1, 2:1 (aukaleikur)SouthamptonCrystal Palace
1902-03Bury6:0Derby CountyCrystal Palace
1903-04Manchester City1:0Bolton WanderersCrystal Palace
1904-05Aston Villa2:0Newcastle UnitedCrystal Palace
1905-06Everton1:0Newcastle UnitedCrystal Palace
1906-07The Wednesday2:1EvertonCrystal Palace
1907-08Wolverhampton Wanderers3:1Newcastle UnitedCrystal Palace
1908-09Manchester United1:0Bristol CityCrystal Palace
1909-10Newcastle United1:1, 2:0 (aukaleikur)BarnsleyCrystal Palace / Goodison Park
1910-11Bradford City0:0, 1:0 (aukaleikur)Newcastle UnitedOld Trafford
1911-12Barnsley0:0, 1:0 (aukaleikur, e. framl.)West Bromwich AlbionCrystal Palace / Bramall Lane
1912-13Aston Villa1:0SunderlandCrystal Palace
1913-14Burnley1:0LiverpoolCrystal Palace
1914-15Sheffield United3:0ChelseaOld Trafford
1919-20Aston Villa1:0 (e. framl.)Huddersfield TownStamford Bridge
1920-21Tottenham Hotspur1:0Wolverhampton WanderersStamford Bridge
1921-22Huddersfield Town1:0Preston North EndStamford Bridge
1922-23Bolton Wanderers2:0West Ham UnitedWembley
1923-24Newcastle United2:0Aston VillaWembley
1924-25Sheffield United1:0 Cardiff CityWembley
1925-26Bolton Wanderers1:0Manchester CityWembley
1926-27 Cardiff City1:0ArsenalWembley
1927-28Blackburn Rovers3:1Huddersfield TownWembley
1928-29Bolton Wanderers2:0PortsmouthWembley
1929-30Arsenal2:0Huddersfield TownWembley
1930-31West Bromwich Albion2:1Birmingham CityWembley
1931-32Newcastle United2:1ArsenalWembley
1932-33Everton3:0Manchester CityWembley
1933-34Manchester City2:1PortsmouthWembley
1934-35Sheffield Wednesday4:2West Bromwich AlbionWembley
1935-36Arsenal1:0Sheffield UnitedWembley
1936-37Sunderland3:1Preston North EndWembley
1937-38Preston North End1:0 (e. framl.)Huddersfield TownWembley
1938-39Portsmouth4:1Wolverhampton WanderersWembley
1945-46Derby County4:1 (e. framl.)Charlton AthleticWembley
1946-47Charlton Athletic1:0 (e. framl.)BurnleyWembley
1947-48Manchester United4:2BlackpoolWembley
1948-49Wolverhampton Wanderers3:1Leicester CityWembley
1949-50Arsenal2:0LiverpoolWembley
1950-51Newcastle United2:0BlackpoolWembley
1951-52Newcastle United1:0ArsenalWembley
1952-53Blackpool4:3Bolton WanderersWembley
1953-54West Bromwich Albion3:2Preston North EndWembley
1954-55Newcastle United3:1Manchester CityWembley
1955-56Manchester City3:1Birmingham CityWembley
1956-57Aston Villa2:1Manchester UnitedWembley
1957-58Bolton Wanderers2:0Manchester UnitedWembley
1958-59Nottingham Forest2:1Luton TownWembley
1959-60Wolverhampton Wanderers3:0Blackburn RoversWembley
1960-61Tottenham Hotspur2:0Leicester CityWembley
1961-62Tottenham Hotspur3:1BurnleyWembley
1962-63Manchester United3:1Leicester CityWembley
1963-64West Ham United3:2Preston North EndWembley
1964-65Liverpool2:1 (e. framl.)Leeds UnitedWembley
1965-66Everton3:2Sheffield WednesdayWembley
1966-67Tottenham Hotspur2:1ChelseaWembley
1967-68West Bromwich Albion1:0 (e. framl.)EvertonWembley
1968-69Manchester City1:0Leicester CityWembley
1969-70Chelsea2:2, 2:1 (aukaleikur)Leeds UnitedWembley / Old Trafford
1970-71Arsenal2:1 (e. framl.)LiverpoolWembley
1971-72Leeds United1:0ArsenalWembley
1972-73Sunderland1:0Leeds UnitedWembley
1973-74Liverpool3:0Newcastle UnitedWembley
1974-75West Ham United2:0FulhamWembley
1975-76Southampton1:0Manchester UnitedWembley
1976-77Manchester United2:1LiverpoolWembley
1977-78Ipswich Town1:0ArsenalWembley
1978-79Arsenal3:2Manchester UnitedWembley
1979-80West Ham United1:0ArsenalWembley
1980-81Tottenham Hotspur1:1, 3:2 (aukaleikur)Manchester CityWembley
1981-82Tottenham Hotspur1:1, 1:0 (aukaleikur)Queens Park RangersWembley
1982-83Manchester United2:2, 4:0 (aukaleikur)Brighton & Hove AlbionWembley
1983-84Everton2:0WatfordWembley
1984-85Manchester United1:0 (e. framl.)EvertonWembley
1985-86Liverpool3:1EvertonWembley
1986-87Coventry City3:2 (e. framl.)Tottenham HotspurWembley
1987-88Wimbledon1:0LiverpoolWembley
1988-89Liverpool3:2 (e. framl.)EvertonWembley
1989-90Manchester United3:3, 1:0 (aukaleikur)Crystal PalaceWembley
1990-91Tottenham Hotspur2:1 (e. framl.)Nottingham ForestWembley
1991-92Liverpool2:0SunderlandWembley
1992-93Arsenal1:1, 2:1 (aukaleikur, framl.)Sheffield WednesdayWembley
1993-94Manchester United4:0ChelseaWembley
1994-95Everton1:0Manchester UnitedWembley
1995-96Manchester United1:0LiverpoolWembley
1996-97Chelsea2:0MiddlesbroughWembley
1997-98Arsenal2:0Newcastle UnitedWembley
1998-99Manchester United2:0Newcastle UnitedWembley
1999-2000Chelsea1:0Aston VillaWembley
2000-01Liverpool2:1ArsenalMillennium Stadium
2001-02Arsenal2:0ChelseaMillennium Stadium
2002-03Arsenal1:0SouthamptonMillennium Stadium
2003-04Manchester United3:0MillwallMillennium Stadium
2004-05Arsenal0:0 (e. framl.) 5:4 í vítak.Manchester UnitedMillennium Stadium
2005-06Liverpool3:3 (e. framl.) 3:1 í vítak.West Ham UnitedMillennium Stadium
2006-07Chelsea1:0 (e. framl.)Manchester UnitedWembley
2007-08Portsmouth1:0 Cardiff CityWembley
2008-09Chelsea2:1EvertonWembley
2009-10Chelsea1:0PortsmouthWembley
2010-11Manchester City1:0Stoke CityWembley
2011-12Chelsea2:1LiverpoolWembley
2012-13Wigan Athletic1:0Manchester CityWembley
2013-14Arsenal3:2 (e. framl.)Hull CityWembley
2014-15Arsenal4:0Aston VillaWembley
2015-16Manchester United2:1 (e. framl.)Crystal PalaceWembley
2016-17Arsenal2:1ChelseaWembley
2017-18Chelsea1:0Manchester UnitedWembley
2018-19Manchester City6:0WatfordWembley
2019-20Arsenal2:1ChelseaWembley
2020-21Leicester City1:0ChelseaWembley
2021-22Liverpool0:0 (e.framl.) 6:5 í vítak.ChelseaWembley
2022-23Manchester City2:1Manchester UnitedWembley