Manchester City

Manchester City er knattspyrnulið sem spilar í ensku úrvalsdeildinni og ríkjandi Englandsmeistari. Liðið var stofnað árið 1880 og hefur unnið efstu deild í Englandi 9 sinnum, þar af ensku úrvalsdeildina 7 sinnum. Leikvangurinn City of Manchester Stadium (Etihad Stadium) var opnaður árið 2003. Árið 2008 var liðið keypt af Abu Dhabi United Group og hefur liðið keypt dýra leikmenn síðan þá og uppskorið eftir því (titlar 2012, 2014 og 2018). Liðið var 5. tekjuhæsta félagsliðið árið 2017.

Manchester City.
Fullt nafnManchester City.
Gælunafn/nöfnCitizens, Sky Blues, City
Stytt nafnMan City, MCFC
Stofnað1880, sem
West Gorton (St. Marks)
LeikvöllurEtihad Stadium
Stærð55,097
KnattspyrnustjóriFáni Spánar Pep Guardiola
DeildEnska úrvalsdeildin
2022-20231. sæti
Heimabúningur
Útibúningur
Lið City árið 2017.

Árið 2017 setti liðið nýtt met á Englandi þegar það vann 18 leiki í röð. Sama ár spilaði lið undirbúningleik á Laugardalsvelli við West Ham í ágúst. Tímabilið 2017-2018 setti City nýtt stigamet í úrvalsdeildinni þegar það náði 100 stigum. Tímabilið 2022-2023 náði liðið að vinna þrennu; deild, bikar og meistaradeildina.

Eigendur liðsins hafa verið sakaðir um ólöglega fjármálagjörninga. [1] Árið 2023 kærði enska úrvalsdeildin liðið fyrir að brjóta fjárhagslegar reglur.[2]

Leikmenn 2023 breyta

Markmenn breyta

Varnarmenn breyta

Miðjumenn breyta

Sóknarmenn breyta

Titlar breyta

  • Fyrsta deild/Úrvalsdeild (9): 1936–37, 1967–68, 2011–12, 2013–14, 2017–18, 2018–19, 2020-2021, 2021-2022, 2022-2023
  • Önnur/Fyrsta deild (7): 1898–99, 1902–03, 1909–10, 1927–28, 1946–47, 1965–66, 2001–02
  • Enski bikarinn (6): 1903–04, 1933–34, 1955–56, 1968–69, 2010–11, 2018-19, 2022-2023
  • Football League Cup (5): 1969–70, 1975–76, 2013–14, 2015–16, 2017–18, 2018-2019, 2019-2020, 2020-2021
  • FA-Samfélagsskjöldurinn (4): 1937, 1968, 1972, 2012, 2018, 2019
  • Evrópukeppni bikarhafa (1): 1969–70
  • Meistaradeild Evrópu (1): 2023
  • Heimsmeistarar félagsliða (1): 2023
  Þessi knattspyrnugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tenglar breyta

Manchester City exposed - Umfjöllun Der Spiegel um fjármál Manchester City

Tilvísanir breyta

  1. Fordæðuskapur og fláræði Manchester City Rúv, skoðað 14. nóv, 2018.
  2. News - Manchester City charged with breaking financial rules by Premier League BBC, sótt 6/2 2023