Stefánskirkjan í Vín

dómkirkja Vínarborgar í Austurríki

Stefánskirkjan í Vín (Stephansdom) er dómkirkja Vínarborgar og er nánast helgidómur fyrir borgarbúa. Kirkjan er meðal merkustu gotnesku bygginga Austurríkis og ein einkennisbygginga borgarinnar.

Stefánskirkjan í Vín. Suðurturninn, sem er 136 m hár, er með stillansa.

Saga kirkjunnar

breyta
Stefánskirkjan árið 1600

Saga kirkjunnar hófst er erkibiskupinn í Passau í Bæjaralandi leyfði byggingu nýrrar kirkju í Vín á 12. öld. Nýja kirkjan átti að vera aðalkirkja borgarinnar. Hún var vígð 1147 og helguð heilögum Stefáni píslarvotti, enda var dómkirkjan í Passau einnig helguð honum. 1230-45 reis ný tengibygging, en meirihluti hennar brann 1258. 1304-1340 var kórinn stækkaður að muna í gotneskum stíl. Nýtt kirkjuskip var svo reist frá og með 1359. Vín varð biskupssetur 1469 og var Stefánskirkjunni þá breytt í dómkirkju, sem hún hefur verið alla tíð síðan. 1433 var suðurturninn fullgerður. Hann er 136 metra hár og er hæsti kirkjuturn Austurríkis. Gefin var út tilskipun þess efnis að engin kirkja í Austurríki mætti vera hærri. 1450 var hafist handa við að reisa norðurturninn. Hann átti að vera sambærilega hár suðurturninum, en verkinu lauk aldrei og er hann er ófullgerður. Þó fékk hann lítið laukþak 1578. Norðurturninn er því eingöngu 68 metra hár og gefur hann kirkjunni nokkuð sérkennilegt útlit. Þegar Tyrkir réðust á Vín í síðara skiptið árið 1683, skemmdist kirkjan talsvert af fallbyssukúlum. Í sprengjuregni og götubardögum heimstyrjaldarinnar síðari slapp kirkjan við allar skemmdir, nema gluggarnir. En 11. apríl 1945 voru nokkrir Austurríkismenn að ræna búðir í kringum Stefánstorgið þar sem kirkjan stendur. Þeir lögðu eld í nokkrar þeirra, en eldurinn breiddist út og læsti sig einnig í kirkjuna. Þak hennar og norðurturninn brunnu. Mikið af innviðinu eyðilagðist. Þannig brann klukknaverkið og féllu nokkrar kirkjuklukkur niður. Gamla orgelið frá 1886 eyðilagðist líka. Ekkert slökkvilið var tiltækt, enda götubardagar í gangi. Næsta morgun hertóku Sovétmenn hverfið og var skaðinn skeður. Sökum þess hve mikilvæg Stefánskirkjan var í augum Vínarbúa, var ákveðið að gera við bygginguna strax að loknu stríði. Fjármagnið kom úr vasa borgarbúa og var kirkjan endurvígð 1952.

Keisaraeiðurinn

breyta

Karl VI keisari sór árið 1713 eið í Stefánskirkjunni þess efnis að hann skyldi reisa nýja kirkju ef mannskæðu pestinni í borginni létti. Á þeim tíma vissu menn ekki hvers eðlis pestir væru og hvort þessi pest yrði komin til að vera og bana öllum íbúum borgarinnar. Því ákvað keisari að sverja slíkan eið. Pestin rénaði þó brátt og þremur árum síðar efndi Karl keisari eið sinn og lét reisa Karlskirkjuna í borginni.

Kirkjuklukkur

breyta
Pummerin er þriðja þyngsta kirkjuklukka Vestur-Evrópu

Stefánskirkjan er með kirkjuklukkur í öllum fjórum turnum sínum, þ.e. norðurturninum, suðurturninum og tveimur smáturnum. Helsta klukkan heitir Pummerin og hangir í norðurturninum (minni turninum). Hún er stærsta og þyngsta kirkjuklukka Austurríkis. Pummerin var smíðuð úr málmi tyrkneskra fallbyssna eftir misheppnaða árás Tyrkja á Vín 1683. Þyngd hennar var 22,5 tonn. Mikið skraut var á klukkunni og nokkrar innskriftir. Klukkan var svo stór að hún passaði eingöngu í gegnum eitt tiltekið borgarhlið. Eftir að inn var komið varð að flytja klukkuna eftir krókastigum, þar sem göturnar voru nógu breiðar. Þrátt fyrir það stórskemmdust tveir múrveggir við flutninginn. Klukkan var sett upp í norðurturninn og vígð 15. desember 1711. Hana átti þó eingöngu að nota við sérstaka viðburði. Henni var hringt í fyrsta sinn 27. janúar 1712 við komu Karls VI til Vínar eftir að hann var krýndur keisari þýska ríkisins. Við það tækifæri urðu 16 manns að handknýja klukkuna og tók það 15 mínútur fyrir þá að láta kólfinn slá í klukkuna í fyrsta sinn. Pummerin eyðilagðist í eldi þegar kviknaði í Stefánskirkjunni 11. apríl 1945 af gáleysi nokkurra þjófa. Þegar norðurturninn brann, eyðilagðist festingin og Pummerin féll niður. Hún brotnaði er hún skall á steingólfið fyrir neðan. 1951 var ný Pummerin smíðuð. Málmurinn kom að hluta úr gömlu klukkunni, en einnig úr nokkrum öðrum smærri klukkum sem höfðu eyðilagst og úr klukkusmiðjunni sjálfri. Nýja klukkan vó 21 tonn og er því ívið léttari en gamla klukkan. Nokkrar myndir prýða nýju klukkuna og þar eru þrjár innskriftir. Pummerin er því fimmta stærsta hreyfiklukka heims og sú þriðja stærsta í Vestur-Evrópu. Þvermál klukkunnar er 314 cm og eftirómur hennar varir í 200 sekúndur. Pummerin er eftir sem áður eingöngu notuð við sérstaka viðburði. Henni var t.d. hringt:

Listinn er ekki tæmandi.

Listaverk og dýrgripir

breyta

Altaristaflan

breyta
Altaristaflan er ca. 12 metra há

Altaristafla Stefánskirkjunnar er dýrgripur úr marmara og grjóti. Hún var smíðuð 1641-45 eftir að gamla taflan var orðin of ormétin. Taflan er um 12 metra há. Hana prýða tvö málverk og sex styttur, fjórar á stallinum og tvær efst. Neðri stytturnar eru af Leópold og Flórían (verndardýrlinga landsins) og Sebastian og Rochus (verndardýrlinga gegn pestum). Efri stytturnar eru af Rúpert og Bónifatíus (verndardýrlinga kristninnar fyrr á öldum). Aðalmálverkið sýnir píslarvættisdauða Stefáns, en hann er verndardýrlingur kirkjunnar.

Wiener Neustadt altarið

breyta
Wiener Neustadt-altarið er mikil listasmíð

Stefánskirkjan er með nokkur hliðaraltari. Eitt þeirra er Wieder Neustadt altarið, en það var smíðað 1447 og er því tveimur öldum eldra en háaltarið. Altarið var gjöf Friðriks III keisara til klaustursins í Wiener Neustadt, en flutt í Stefánskirkjuna 1884. Altaristaflan er með tveimur hliðartöflum sem hægt er að loka. Það er elsta slíka altaristafla Austurríkis. Myndefnið er gert úr viðarstyttum og eru af dýrlingum ýmissa landa og ýmissa tímabila (t.d. heilagrar Katríar, Barböru, Lúsíu, Úrsúlu o.fl.). Á bakhlið hliðararmanna (þegar þeir eru lokaðir) eru málverk af nokkrum postulum, dýrlingum og páfum. Altaristaflan er allt í allt stórkostlegt listaverk. Það skemmdist ekki í brunanum 1945, en viðgerð á því 1950 og 1952 þótti koma illa út.

Predikunarstóllinn

breyta

Predikunarstóllinn er fyrir miðju kirkjuskipsins og er gerður úr kalksteini við smíði skipsins á miðri 14. öld. Myndefni stólsins var gert síðar, 1510-15. Fjórar mannsmyndir eru hringinn í kringum stólinn. Þær sýna lærifeðurnar í frumkristni: Ágústínus, Ambrosíus, Gregor hinn mikla og Híeronýmus. Þeir vísa einnig til hinna fjögurra skapgerða og hinna fjögurra aldurshópa.

Bænahús keisara

breyta
Bænahús keisara

Í kirkjuskipinu er sérstakur skápur sem lokaður er fyrir almenningi. Hér er um bænahús keisarans að ræða, þ.e. staður þar sem keisarinn gat kropið niður og beðið einsamall án truflunar annarra kirkjugesta. Bænahúsið er tvílyft, þ.e. neðri skápurinn og efri skápurinn. Þeir voru smíðaðir 1644 og voru notaðir í fyrsta sinn af Ferdinand III keisara.

Gluggar

breyta

Langflestir upphaflegir gluggar Stefánskirkjunnar eru týndir. Skipt hefur verið um glugga nokkru sinnum í gegnum tíðina, þar sem mönnum þótti eldri gluggarnir ekki lengur passlegir fyrir nýja tíð. Allir gluggar kirkjunnar eyðilögðust hins vegar í höggbylgjum sprengna í heimstyrjöldinni síðari, sem og í eldinum sem braust út í kirkjunni 1945. Aðeins tveir gluggar í kórnum hafa lifað tíðina af og eru upprunalegir gluggar kirkjunnar. Annar sýnir hertogann Leópold I af Habsborg, en hinn hertogann Rúdolf I af Bæheimi. Allir aðrir gluggar kirkjunnar í dag eru gjafir héðan og þaðan.

Grafhvelfing

breyta

Í Stefánskirkjunni er grafhvelfing þar sem 19 einstaklingar hvíla í steinkistum.

RöðEinstaklingurAth.Dánarár
1Friðrik IIIKeisar þýska ríkisins1330
2Elísabet hertogaynjaDóttir Friðriks III hertoga1336
3Friðrik IIIHertogi af Austurríki1362
4Rúdolf IVErkihertogi af Austurríki1365
5Katarína erkihertogaynjaDóttir Albrechts I hertoga1381
6Katarína af LúxemborgEiginkona Rúdolfs IV erkihertoga1395
7Albrecht IIIErkihertogi af Austurríki1395
8Albrecht IVErkihertogi af Austurríki1404
9Jóhanna Soffía frá BæjaralandiEiginkona Albrechts IV1410
10Beatrix af ZollernEiginkona Albrechts III1414
11GeorgNýfæddur sonur Albrechts II konungs1435
12VilhjálmurErkihertogi af Austurríki1406
13Leopold IVErkihertogi af Austurríki1411
14Albrecht VIErkihertogi af Austurríki1463
15FerdinandUngur sonur Maximilians II keisara1552
16Elísabet af AusturríkiEiginkona Karls IX Frakklandskonungs1592
17Ónefndur prinsUngur sonur Maximilians II keisara1557
18MaríaNýfædd dóttir Maximilians II keisara1564
19Eleonóra GonzagaSíðari eiginkona Ferdinands II keisara1655
Steinkista Friðriks III keisara

Auk ofangreindra aðila eru innyfli ýmissa hertoga Habsborgara, kardinála Vínar og erkibiskupa geymd í krukkum og öðrum ílátum í grafhvelfingunni, þar á meðal Napoleons Frans Bonaparte, sonur Napoleons Bonaparte.Í postulakórnum, inn af kirkjuskipinu, er svo enn ein steinkista. Í henni hvílir Friðrik III keisari, en hann var lagður í hana 1513. Þar er einnig steinkista hertogans Rúdolfs IV, en hún er tóm, því hertoginn hvílir í grafhvelfingunni ásamt Katarínu eiginkonu sinni.

Heimildir

breyta

Tengd efni

breyta