Staðallíkan

Staðallíkanið er líkan í nútímaeðlisfræði, sem lýsir öreindum og þeim kröftum, sem verka á þær eða þá krafta sem þær bera samkvæmt skammtasviðskenningu. Helsti ókostur staðallíkansins er að það skýrir ekki þyngdarafl.

Víxlverkanir öreinda samkvæmt staðallíkaninu. Efst eru fermíeindír, þ.e. létteindir og kvarkar, í miðjunni kraftmiðlandi eindir, þ.e. ljóseindir, W og Z-bóseindir og límeindir, en neðst Higgs-bóseindin

Öreindirnar skiptast gróflega í tvo hópa, fermíeindir, með hálftöluspuna og bóseindir (bósónur) með heiltöluspuna. Minnstu fermíeindirnar, sem ekki virðast samsettar úr öðrum smærri eindum, eru létteindir og kvarkar. Hver kjarneind (þungeind), sem samsett er úr þremur kvörkum, myndar ásamt rafeindum (létteind) frumeindir, sem eru bygginareiningar efnis. Miðeindir (mesónur) eru samsettar úr pörum kvarka og andkvarka. Nokkrar bóseindir miðla kröftum: ljóseindir (fótónur) rafsegulkrafti, kvarðabóseindir veika kjarnakraftinum, en límeindir þeim sterka. Margar öreindir, t.d. raf- og róteind, hafa rafhleðslu, en ekki nifteind, fiseind né ljóseind.

Fermíeindir breyta

Hafa hálftöluspuna.

Létteindir breyta

Eru efnisminnstu öreindirnar, en jafn vel er talið að fiseindir hafi engan massa. Massi raf- og jáeindar er 511 keV/c2.

 Létteindir
123
Rafhleðsla0Rafeindarfiseinde)Mýeindarfiseind (νμ)Táfiseind (ντ)
−1Rafeind (e)Mýeind (μ)Táeind (τ)

Kvarkar breyta

Eru byggingareiningar efnis og mynda kjarneindir, sem ásamt rafeindum mynda efni. Sterkeindir eru samsettar úr kvörkum og hafa sterka víxlverkun.

 Kvarkar
123
Rafhleðsla+2/3upp (u)þokki (c)toppur (t)
−1/3niður (d)sérstaða (s)botn (b)

Þungeindir breyta

Eru sterkeindir samsettar úr þremur kvörkum, t.d. róteind (p) og nifteind (n), sem eru myndaðar úr upp- „u“ og niður-kvörkum „d“ þ.a. p=uud og n=udd. Massi kjarneindanna er um 940 MeV/c2.

Bóseindir breyta

Bóseindir hafa heiltöluspuna.

Kratfmiðlandi eindir breyta

Sex bóseindir (kraftmiðlarar) miðla frumkröftunum fjórum: Rafsegulkrafti, veika- og sterka kajarnakraftinum og þyngdarkraftinum.

BóseindMassi · c2SpuniRafhleðslaVíxlverkun
Ljóseind010Rafsegulkraftur
Z0-Bóseindum 91 GeV10Veiki kjarnakrafturinn
W+-Bóseindum 80 GeV11
W-Bóseindum 80 GeV1−1
Límeind010Sterki kjarnakrafturinn
(Þyngdareind)020Þyngdarafl

Higgs-bóseindin gegnir lykilhlutverki í staðallíkaninu, en hefur þrátt fyrir mikla leit ekki fundist enn. Vonir eru bundnar við að finna hana í tilraunum með Stóra sterkeindahraðalinn.

Miðeindir breyta

Eru sterkeindir samsettar úr pörum kvarka og andkvarka.

  Þessi tæknigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.