Pierre-Emerick Aubameyang

Pierre Emerick-Aubameyang (fæddur 18. júní 1989) er gabonskur knattspyrnumaður sem spilar fyrir Olympique de Marseille og gabonska landsliðið. Hann er annálaður fyrir hraðan leikstíl. Hann hefur skorað yfir 330 mörk í öllum keppnum.

Pierre Emerick-Aubameyang
Upplýsingar
Fullt nafnPierre-Emerick Emiliano François Aubameyang
Fæðingardagur18. júní 1989 (1989-06-18) (34 ára)
Fæðingarstaður   Laval, Frakkland
Hæð1,86m
LeikstaðaSóknarmaður
Núverandi lið
Núverandi liðOlympique de Marseille
Númer14
Meistaraflokksferill1
ÁrLiðLeikir (mörk)
2008-2011AC Milan0 (0)
2008-2009Dijon FCO (lán)34 (8)
2009-2010Lille OSC (lán)14 (2)
2010-2011AS Monaco FC (lán)19 (2)
2011AS Saint-Étienne (lán)14 (2)
2011-2013AS Saint-Étienne73 (35)
2013-2018Borussia Dortmund144 (98)
2018-2022Arsenal128 (68)
2022FC Barcelona15 (11)
2022-2023Chelsea FC18 (1)
2023-Olympique de Marseille34 (17)
Landsliðsferill
2009
2011-2012
2009-
Frakkland U21
Gabon U23
Gabon
1 (0)
3 (1)
77 (31)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins og
síðast uppfært sept. 2022.

Aubameyang hóf ferilinn í Frakklandi og hélt svo til Borussia Dortmund í Þýskalandi. Hann varð markahæsti leikmaðurinn í Bundesliga tímabilið 2016-2017.

Frá 2018 til 2022 var hann með Arsenal. Aubameyang skoraði 22 mörk á tímabilinu 2018-2019 í ensku úrvalsdeildinni og deildi markakóngstitlinum með Sadio Mané og Mohamed Salah.Í desember 2021 var Aubameyang sviptur kapteinstitlinum í Arsenal eftir agabrot.

Hann hélt í kjölfarið til Barcelona. Hann skoraði þrennu í sínum þriðja leik í La Liga. Í september 2022 fór hann aftur til London þegar hann samdi við Chelsea.

Faðir hans spilaði knattspyrnu fyrir gabonska landsliðið og í Frakklandi, einnig spila hálfbræður hans knattspyrnu. Móðir Aubameyang er spænsk.

Þann 19. maí 2022 tilkynnti Aubameyang opinberlega að hann hefði hætt á alþjóðavísu eftir 73 landsleiki og 30 mörk skoruð. Hann endurskoðaði ákvörðun sína og hélt áfram með landsliðinu.

Heimild

breyta