Pétur postuli
Pétur, einnig þekktur sem Pétur postuli, Símon Pétur og Kefas var einn af 12 lærisveinum Jesú. Um hann er fjallað í guðspjöllunum og í Postulasögunni í Nýja testamenti Biblíunnar. Pétur var fiskimaður í Galíleu og veiddi í Galíleuvatni áður en hann fór að fylgja Jesú. Hann er talinn hafa verið fyrsti páfi kaþólsku kirkjunnar. Hann var krossfestur í ofsóknum Nerós keisara rómverska ríkisins á hendur kristnum mönnum í Róm 64 eða 67 e.Kr. og var höfuð hans látið snúa niður. Því hefur verið haldið fram að aftökustaðurinn hafi verið þar sem Péturskirkjan stendur nú.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Pétur postuli.
🔥 Top keywords: ForsíðaViktor TraustasonHalla Hrund LogadóttirPípuhatturForsetakosningar á Íslandi 2024Carles PuigdemontEiríkur Ingi JóhannssonKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitÁsdís Rán GunnarsdóttirÁstþór MagnússonArnar Þór JónssonHalla TómasdóttirXXX RottweilerhundarFiann PaulÓfærufossLandsbankinnJón GnarrForsetakosningar á Íslandi 2016Steinunn Ólína ÞorsteinsdóttirHelga ÞórisdóttirBaldur ÞórhallssonKatrín JakobsdóttirListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaListi yfir íslensk póstnúmerOrkumálastjóriSeinni heimsstyrjöldinÓlafur Ragnar GrímssonÓlafur Darri ÓlafssonIcesaveListi yfir íslensk mannanöfnForsetakosningar á ÍslandiAlsírstríðiðHera Björk ÞórhallsdóttirÍslandJón Þorsteinsson (söngvari)Forseti ÍslandsBrúðkaupsafmæli