Galílea
Galílea (lat. Galileia) er landsvæði norðarlega í Ísrael milli Líbanon, Karmel-fjalls og Tiberias-hafsins með hinni frjósömu Jizreel-sléttu. Heitið á sér uppruna að því helst er talið í hebreska orðinu galil sem merkir hringur.
Hebreski sagnaritarinn Josefus skipti landinu í Efri-Galíleu, með háum fjöllum, sumum meira en þúsund metra háum, og Neðri-Galíleu sem er svæðið umhverfis Genesaret-hafið, u.þ.b. 180 metrum undir yfirborði sjáfar. Þar má finna frjósöm héruð.[1]
Í Galíleu eru ýmsir bæir og borgir þekktir úr Biblíunni svo sem Nasaret, Kana, Nain, Kapernaum og Tiberias. Íbúarnir voru á biblíutímanum blanda af gyðingum og fjölgyðistrúarmönnum. Þannig voru Jesús og margir af lærisveinum hans frá Galíleu.
Tilvísanir breyta
- ↑ Peter Walker: I Jesu fotspor (s. 65-6), forlaget Hermon, Skjetten 2010, ISBN 978-82-302-0768-0
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarForsetakosningar á Íslandi 2024Kerfissíða:LeitCarles PuigdemontXXX RottweilerhundarHelförinArnar Þór JónssonListi yfir íslensk póstnúmerHalla TómasdóttirFiann PaulHalla Hrund LogadóttirHvítasunnudagurKatrín JakobsdóttirListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir skammstafanir í íslenskuEiríkur Ingi JóhannssonHjálp:LeitÁstþór MagnússonViktor TraustasonListi yfir íslensk mannanöfnÁsdís Rán GunnarsdóttirBaldur ÞórhallssonSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaWikipedia:PotturinnSíberíuliljaBrúðkaupsafmæliJón GnarrÍðnetListi yfir morð á Íslandi frá 2000Forsetakosningar á Íslandi 2016ÍslandTyrklandHelga ÞórisdóttirGylfi Þór SigurðssonSan MarínóForseti ÍslandsÍslenska stafrófið