Forseti Íslands

þjóðhöfðingi og æðsti embættismaður Íslands

Forseti Íslands er þjóðhöfðingi og æðsti embættismaður lýðveldisins Íslands. Forsetinn er þjóðkjörinn til fjögurra ára í senn og er eini embættismaðurinn sem kjörinn er í beinni kosningu. Samkvæmt stjórnarskrá Íslands er forsetinn æðsti handhafi framkvæmdavaldsins og annar handhafi löggjafarvaldsins. Í reynd er þátttaka forsetans í löggjöf eða stjórnarathöfnum yfirleitt aðeins formsatriði þannig að hann hefur ekki aðkomu að efni löggjafar eða stjórnarathafna. Þó er viðurkennt að hann getur haft áhrif á stjórnarmyndunarviðræður og jafnvel skipað utanþingsstjórn ef aðstæður til þess eru uppi. Jafnframt hefur forsetinn vald til þess að synja lagafrumvarpi frá Alþingi staðfestingar og leggja það í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu en á það hefur reynt þrisvar í sögu embættisins. Í fjarveru forsetans fara forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar saman með vald forsetans.

Forsetaskjaldarmerki

Flest störf forsetans eru táknræn og er stundum sagt um embættið að það eigi að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Á meðal hefðbundinna embættisverka forsetans er að flytja þjóðinni ávarp á nýársdag, að ávarpa Alþingi við setningu þess jafnframt því sem forsetinn setur Alþingi formlega, að veita fálkaorðuna og ýmis verðlaun á vegum embættisins og félagasamtaka. Forsetinn tekur einnig á móti erlendum þjóðhöfðingjum og öðrum hátt settum gestum í opinberum heimsóknum á Íslandi og fer sjálfur í opinberar heimsóknir til annara ríkja. Aðsetur forseta Íslands er á Bessastöðum á Álftanesi en embættið hefur jafnframt skrifstofu í húsinu Staðastað við Sóleyjargötu 1 í Reykjavík. Afmælisdagur forsetans hverju sinni er íslenskur fánadagur.

Frá tilurð embættisins við lýðveldisstofnunina 17. júní 1944 hafa sex einstaklingar gegnt embættinu. Þeirra fyrstur var Sveinn Björnsson, síðan Ásgeir Ásgeirsson og Kristján Eldjárn. Árið 1980 var Vigdís Finnbogadóttir kjörin forseti Íslands og varð þar með fyrsti kvenkyns þjóðkjörni þjóðhöfðinginn í heiminum. Ólafur Ragnar Grímsson náði kjöri árið 1996 og gegndi forsetaembættinu til ársins 2016, lengst allra forseta landsins. Í forsetakosningum þann 25. júní 2016 var Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur kjörinn forseti Íslands og gegndi embætti í 8 ár.

Kjörgengi breyta

Forsetaefni skal skv. stjórnarskránni og lögum um framboð og kjör forseta Íslands vera minnst 35 ára auk þess að uppfylla sömu skilyrði og gerð eru um kosningarétt til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu, en samkvæmt því þarf að eiga lögheimili á Íslandi til að eiga kosningarétt.

Forsetafáni Íslands

Hlutverk forseta breyta

  • Þingsetning
  • Staðfesting laga
  • Nýársávarp
  • Orðuveiting
  • Móttaka og opinberar heimsóknir til erlendra þjóðhöfðingja
  • Stjórnarmyndun (ef þingflokkar ná ekki saman um myndun ríkisstjórnar)

Ímynd forseta breyta

  • Sameiningartákn þjóðarinnar
  • Verndari íslenskrar menningar
  • „Landkynning“

Synjun forseta á staðfestingu frumvarps til laga um fjölmiðla 2004 breyta

Ólafur Ragnar Grímsson neitaði fyrstur forseta Íslands að staðfesta lagafrumvarp vorið 2004. Um var að ræða frumvarp að lögum um fjölmiðla (fjölmiðlafrumvarpið). Ákvörðunin var umdeild, en Alþingi tók í framhaldi frumvarpið af dagskrá, þ.a. ekki þótti nauðsynlegt að leggja það fyrir dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og gera bar skv. stjórnarskrá Íslands.

Fjarvera breyta

Þegar forseti er ófær um að sinna skyldum sínum vegna sjúkleika eða dvalar erlendis fara handhafar forsetavalds með vald Forseta Íslands. Í áttundu grein stjórnarskrárinnar er kveðið á um að Forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar fari með forsetavald í fjarveru forsetans. Ef nauðsynlegt er að skrifa undir lög í fjarveru forsetans þarf undirritun tveggja til að lög taki gildi. Það var lengi hefð fyrir því að einn af handhöfum forsetavalds fylgdi forseta á flugvöllinn en Guðni Th Jóhannesson afnam þá hefð þegar hann tók við embætti forseta árið 2016.[1]

Allir handhafar forsetavalds hafa staðgengil ef þeir eru staddir erlendis á sama tíma og forsetinn. Það eru varaforsetar Alþingis, varaforseti Hæstaréttar og ríkisstjórnarflokkarnir gera samkomulag um hvaða ráðherra sé staðgengill forsætisráðherra.

Forsetar breyta

MyndForsetiTók við embættiLausn frá embættiSat íKjörtímabilAldur í forsetatíð
Sveinn Björnsson17. júní 194425. janúar 19522.778 daga263 til 70 ára
Ásgeir Ásgeirsson1. ágúst 195231. júlí 19685.844 daga458 til 74 ára
Kristján Eldjárn1. ágúst 196831. júlí 19804.383 daga351 til 63 ára
Vigdís Finnbogadóttir1. ágúst 198031. júlí 19965.844 daga450 til 66 ára
Ólafur Ragnar Grímsson1. ágúst 199631. júlí 20167.304 daga553 til 73 ára
Guðni Th. Jóhannesson1. ágúst 201631. júlí 20242.921 daga248 til 56 ára

Sveinn Björnsson lést í embætti. Handhafar forsetavalds fóru með völd forseta fram að innsetningu Ásgeirs Ásgeirssonar í embættið þann 1. ágúst sama ár.

Guðni Thorlacius JóhannessonÓlafur Ragnar GrímssonVigdís FinnbogadóttirKristján EldjárnÁsgeir ÁsgeirssonSveinn Björnsson


Tenglar breyta

  1. „Hætta að fylgja forseta Íslands úr landi“. www.ruv.is.