22. júní
dagsetning
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | ||||||
2024 Allir dagar |
22. júní er 173. dagur ársins (174. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 192 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir breyta
- 168 f.Kr. - Rómverjar sigruðu Makedóníumenn í orrustunni við Pydna.
- 431 - Kirkjuþingið í Efesos dæmdi Nestoríos patríarka í Konstantínópel sekan um villutrú.
- 1372 - Englendingar biðu ósigur fyrir sameinuðum flota Frakka og Kastilíumanna í orrustunni við La Rochelle.
- 1483 - Ríkharður lýsti því yfir að hann yrði konungur Englands þar sem Játvarður 5. væri óskilgetinn.
- 1593 - Her Heilaga rómverska ríkisins vann sigur á her Ottómanaveldisins í orrustunni við Sisak í Króatíu. Þar með stöðvaðist sókn Tyrkja inn í Mið-Evrópu í bili en bardaginn markaði upphaf Langa stríðsins svonefnda.
- 1633 - Galileo Galilei neyddist til að taka aftur sólmiðjukenningu sína opinberlega fyrir Rannsóknarréttinum í Róm.
- 1636 - Herstjóraveldið í Japan bannaði allar ferðir Japana til og frá landinu. Bannið gilti til ársins 1853.
- 1671 - Tyrkjaveldi lýsti Póllandi stríð á hendur.
- 1679 - James Scott hertogi af Monmouth vann sigur á sáttmálamönnum í orrustunni við Bothwell Brig.
- 1815 - Napóleon Bónaparte sagði af sér öðru sinni. Fjögurra ára sonur hans, Napóleon 2., var keisari í tvær vikur, til 7. júlí.
- 1897 - Viktoría Bretadrottning fagnaði sextíu árum á valdastóli.
- 1919 - Þjóðabandalagið var stofnað í París með því að 44 ríki undirrituðu stofnsáttmála þess.
- 1919 - Bandamannaleikarnir settir París með þátttöku fjölda íþróttamanna.
- 1939 - Hitamet var sett á Teigarhorni í Berufirði: Mesti mældur hiti á Íslandi frá upphafi mælinga, 30,5°C.
- 1941 - Þýskaland hóf innrás í Sovétríkin.
- 1955 - Bandaríska teiknimyndin Hefðarfrúin og umrenningurinn var frumsýnd.
- 1970 - Led Zeppelin lék á tónleikum í Laugardalshöll á Íslandi.
- 1977 - Hópferðabíll valt í Biskupstungum og lá við stórslysi. Í bílnum voru 46 farþegar af skemmtiferðaskipi og meiddust margir þeirra en enginn alvarlega.
- 1979 - Bandaríska tölvuleikjafyrirtækið Infocom var stofnað í Bandaríkjunum.
- 1981 - Abolhassan Banisadr Íransforseti var settur af.
- 1983 - Danski stjórnmálamaðurinn Mogens Glistrup var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir skattaundanskot.
- 1984 - Fyrsta flug flugfélagsins Virgin Atlantic Airways fór fram.
- 1986 - Í leik gegn Englandi á Heimsmeistaramóti landsliða í knattspyrnu karla skoraði Diego Maradona mark með hendi („hönd guðs“) og síðan annað með því að rekja boltann framhjá öllum leikmönnum enska liðsins („mark aldarinnar“).
- 1988 - Bandaríska kvikmyndin Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu var frumsýnd.
- 1989 - Háskólarnir Dublin City University og University of Limerick tóku til starfa á Írlandi.
- 1989 - Nursultan Nazarbayev varð forseti Kasakstan.
- 1990 - Landamærastöðin Checkpoint Charlie í Berlín var tekin niður.
- 1990 - Norski olíusjóðurinn var stofnaður.
- 1991 - Á Snæfellsjökli féllu hjón niður í alldjúpa sprungu en var bjargað.
- 1992 - Bein Nikulásar 2. Rússakeisara og Alexöndru Fjodorovnu voru grafin upp í Jekaterínburg.
- 1993 - Nýi flokkurinn Sakigake klauf sig frá Frjálslyndum demókrötum í Japan.
- 1995 - Tamílamálið: Fyrrum dómsmálaráðherra Danmerkur, Erik Ninn-Hansen, var dæmdur sekur.
- 1997 - Sænski tónlistarmaðurinn Ted Gärdestad framdi sjálfsmorð með því að stökkva fyrir lest.
- 2004 - Belgíski barnaníðingurinn Marc Dutroux var dæmdur í lífstíðarfangelsi.
- 2007 - Spangarheiðarskurðurinn var opnaður fyrir bátaumferð að nýju.
- 2010 - Léttlestakerfi Björgvinjar var tekið í notkun í Noregi.
- 2010 - Mari Kiviniemi tók við embætti forsætisráðherra Finnlands eftir afsögn Matti Vanhanen.
- 2012 - Þing Paragvæ samþykkti vantraust á forsetann, Fernando Lugo.
- 2016 - Karlalandslið Íslands í knattspyrnu komst í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni í knattspyrnu með 2:1 sigri á Austurríki.
- 2022 – Að minnsta kosti þúsund manns létu lífið í jarðskjálfta í Afganistan.
Fædd breyta
- 1000 - Róbert 1. af Normandí, franskur hertogi (d. 1035).
- 1757 - George Vancouver, breskur landkönnuður (d. 1798).
- 1821 - Theodor Möbius, þýskur norrænufræðingur (d. 1890).
- 1897 - Norbert Elias, þýskur félagsfræðingur (d. 1990).
- 1898 - Erich Maria Remarque, þýskur rithöfundur (d. 1970).
- 1905 - Lárus Ingólfsson, íslenskur leikari (d. 1981).
- 1906 - Billy Wilder, austurrísk-amerískur leikstjóri (d. 2002).
- 1908 - Pablo Dorado, úrúgvæskur knattspyrnumaður (d. 1978).
- 1928
- Steingrímur Hermannsson, íslenskur stjórnmálamaður (d. 2010).
- Ralph Waite, bandarískur leikari (d. 2014).
- 1936 - Kris Kristofferson, bandarískur kántrýsöngvari.
- 1947 - Bruno Latour, franskur félagsfræðingur.
- 1949
- Carlo Petrini, ítalskur blaðamaður.
- Meryl Streep, bandarísk leikkona.
- Elizabeth Warren, bandarísk stjórnmálakona.
- 1953 - Cyndi Lauper, bandarísk söngkona.
- 1958 - Bruce Campbell, bandarískur leikari.
- 1962 - Clyde Drexler, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1963 - Guðrún Gunnarsdóttir, íslensk söngkona.
- 1965 - Ľubomír Moravčík, slóvakískur knattspyrnumaður.
- 1973 - Curt Cornelius, bandarískur leikari.
- 1974 - Donald Faison, bandarískur leikari.
- 1987 - Naoyuki Fujita, japanskur knattspyrnumaður.
Dáin breyta
- 1276 - Innósentíus 5. páfi (f. um 1225).
- 1637 - Torfi Finnsson, íslenskur skólameistari.
- 1931 - Armand Fallières, forsætisráðherra Frakklands (f. 1841).
- 1936 - Moritz Schlick, þýskur heimspekingur (f. 1882).
- 1945 - Dzhambúl, kasakst skáld (f. 1846).
- 1969 - Judy Garland, bandarísk söng- og leikkona (f. 1922).
- 1974 - Darius Milhaud, franskt tónskáld (f. 1892).
- 1978 - Jens Otto Krag, danskur stjórnmálamaður (f. 1914).
- 1987 - Fred Astaire, bandarískur dansari og leikari (f. 1899).
- 1993 - Pat Nixon, forsetafru Bandarikjanna (f. 1912).
- 2002 - Yoshio Okada, japanskur knattspyrnumaður (f. 1926).
- 2008 - George Carlin, bandarískur leikari (f. 1937).
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:LeitKerfissíða:Nýlegar breytingarHalla Hrund LogadóttirSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Carles PuigdemontUppstigningardagurForsetakosningar á Íslandi 2024Söngvakeppnin 2024Ísland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaLandsbankinnListi yfir íslensk póstnúmerHera Björk ÞórhallsdóttirSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaViktor TraustasonFiann PaulGuðrún Karls HelgudóttirÁstþór MagnússonListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaHalla TómasdóttirBaldur ÞórhallssonListi yfir landsnúmerListi yfir íslensk mannanöfnEigið féListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir skammstafanir í íslenskuBrúðkaupsafmæliMarie AntoinetteGylfi Þór SigurðssonÍslandSeinni heimsstyrjöldinEiríkur Ingi JóhannssonEllen KristjánsdóttirXXX RottweilerhundarInnrás Rússa í Úkraínu 2022–Íslenska stafrófiðKatrín JakobsdóttirSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirBenjamin Ingrosso