Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 58.482 greinar.
Grein mánaðarins
Stúdentauppreisnin er heiti á hrinu mótmæla og óeirða sem hófust í París í maí árið 1968 og breiddust út til annarra hluta Frakklands. Í daglegu tali eru óeirðirnar gjarnan kenndar við maímánuð 1968 og einfaldlega vísað til þeirra sem „maí '68“ (franska: Mai 68). Óeirðirnar entust í um sjö vikur og einkenndust á þeim tíma af allsherjarverkföllum og yfirtökum stúdenta og verkamanna í háskólum og verksmiðjum. Þegar mótmælin stóðu sem hæst óttuðust ráðamenn í Frakklandi að þau væru byrjun á borgarastyrjöld eða byltingu.
Mótmælin í Frakklandi voru tengd mótmælahreyfingu í fleiri löndum sem var áberandi á árinu 1968. Atburðirnir þetta ár skildu eftir sig djúp spor í franskri menningu og þátttakendur í óeirðunum eru gjarnan kenndir við „68-kynslóðina“.
Í fréttum
- 16. apríl: Eldur kviknar í Børsen (sjá mynd) í Kaupmannahöfn.
- 10. apríl: Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar tekur við völdum á Íslandi í kjölfar afsagnar Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
- 9. apríl: Simon Harris tekur við af Leo Varadkar sem forsætisráðherra Írlands.
- 5. apríl: Katrín Jakobsdóttir biðst lausnar sem forsætisráðherra Íslands og gefur kost á sér í forsetakosningum.
Yfirstandandi: Átökin í Súdan • Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Stríð Ísraels og Hamas • Sýrlenska borgarastyrjöldin • Eldgosið við Sundhnúksgíga
Atburðir 3. maí
- 2000 - Fyrsti Geocaching-leikurinn fór fram.
- 2003 - 16 létust í flóðum í Argentínu.
- 2006 - Armavia flug 967 brotlenti í Svartahafi; 113 létu lífið og enginn komst af.
- 2007 - Madeleine McCann, þriggja ára gamalli stúlku, var rænt úr hótelherbergi í Portúgal, þar sem hún var með fjölskyldu sinni í fríi.
- 2008 - Yfir 133 þúsund manns létust af völdum fellibyls í Mjanmar.
- 2018 - Spænsku skæruliðasamtökin ETA lýstu því formlega yfir að þau hygðust leysa sig upp eftir 40 ára baráttu.
- 2018 - Eldgosið í Puna 2018: Hraun flæddi yfir stórt svæði í héraðinu Puna á Hawaii.
- 2019 - Fjöldi látinna í ebólafaraldrinum í Kivu náði 1.000. Þetta var annar skæðasti ebólafaraldur sögunnar.
- 2019 - Átök Ísraela og Palestínumanna á Gasa 2019: Ísraelsher skaut flugskeytum á Gasaströndina með þeim afleiðingum að 20 létust.
Vissir þú...
- … að Võ Nguyên Giáp, helsti hershöfðingi Víetnams í Víetnamstríðinu, lifði til ársins 2013 og varð 102 ára?
- … að Svetlana Allílújeva, dóttir Jósefs Stalín, yfirgaf Sovétríkin á sjöunda áratugnum og gerðist bandarískur ríkisborgari?
- … að titill vísindaskáldsögunnar Dune var þýddur sem Dúna á íslensku vegna þess að þýðendurnir vildu forðast að nota orð sem vísuðu í vatn eða snjó?
- … að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1824 voru annað og síðasta skiptið sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings varð að kjósa forsetann þar sem enginn frambjóðandi hlaut meirihluta kjörmanna í sjálfum kosningunum?
- … að Julian Lennon, sonur Johns Lennon, var innblástur fyrir þrjú lög Bítlanna: „Lucy in the Sky with Diamonds“, „Hey Jude“, og „Good Night“?
- … að teiknimyndapersónan Bósi Ljósár (sjá mynd) var nefnd eftir geimfaranum Buzz Aldrin, öðrum manninum til að stíga fæti á tunglið?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók | Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur | Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir | Wikilífverur Safn tegunda lífvera | Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn | Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna | Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur | Wikivoyage Ferðaleiðarvísar | Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |