Léttlest er járnbrautarlest, sem notuð er við almenningssamgöngur í borgum og í öðrum þéttbýlum svæðum. Léttlestarkerfi er einskonar millistig á milli sporvagns og snarlestar. Léttlestir bera oftast færri farþega en snarlestir og eru ekki eins hraðskreiðar, en þær eru aftur á móti hraðskreiðari og geta tekið fleiri farþega en sporvagnar. Ein sérstaða léttlesta er sú að þær geta bæði gengið á sér sporum aðskildar frá umferð og á spori ásamt umferð. Flestar léttlestir eru knúnar áfram með rafmagni en þó eru til lestir sem notast við díselolíu.

METRO léttlest í miðbæ Houston, Texas, Bandaríkjunum
LYNX léttlest í Charlotte, [Norður-Karólínu, Bandaríkjunum

Samanburður við önnur lestarkerfi breyta

GerðSnarlestLéttlestSporvagn
FramleiðandiRohrSiemens St.Louis Car
TegundBart A-CarS70PCC
Breidd3,2 m2,7 m2,5 m
Lengd22,9 m27,7 m14,2 m
BurðargetaHámark 150 mannsHámark 220 mannsHámark 65 manns
Hámarkshraði125km/klst106km/klst70km/klst

Léttlestir á Íslandi breyta

Komið hafa upp hugmyndir um að koma á fót léttlestakerfi á höfuðborgarsvæðinu. Drög að hugsanlegu kerfi hefur verið á aðalskipulagi Reykjavíkur. Einnig hafa komið upp hugmyndir um að hafa léttlest frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins.