Kassandra
Kassandra er í grískri goðafræði dóttir konungsins Príamosar í Tróju og drottingarinnar Hekabe. Fegurð hennar heillaði guðinn Appollon þannig að hann gaf henni forspárgáfu en þegar hún hafnaði ástum hans þá lagði Appollon á hana þau álög að enginn skyldi trúa spádómum hennar.
Kassandra sá fyrir fall og eyðileggingu Trójuborgar og varaði Trójumenn við Trójuhestinum, hún sá fyrir dauða Agamemnons og sínar eigin raunir og dauða en hún gat engu breytt.
Eftir Trójustríðið leitaði hún hælis í musteri Aþenu og þar var henni nauðgað af Ajax. Hún var tekin til fanga og gerð að hjákonu Agamemnons í Mýkenu.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kassandra.
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaRíkissjóður ÍslandsHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2024FnjóskáHalla Hrund LogadóttirKerfissíða:LeitForsetakosningar á Íslandi 2016Eiríkur Ingi JóhannssonErpur EyvindarsonViktor TraustasonÁgúst Bent SigbertssonCarles PuigdemontÁstþór MagnússonArnar Þór JónssonKerfissíða:Nýlegar breytingarHelga ÞórisdóttirKatrín JakobsdóttirBaldur ÞórhallssonÁsdís Rán GunnarsdóttirEnglar alheimsins (kvikmynd)Forseti ÍslandsMúsíktilraunirForsetakosningar á Íslandi 2020Fiann PaulVigdís FinnbogadóttirForsetakosningar á Íslandi 2012FnjóskadalurSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirForsetakosningar á ÍslandiHljómsveitBrúðkaupsafmæliXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Listi yfir íslensk póstnúmerForsetakosningar á Íslandi 1996Ólafur Ragnar GrímssonJón GnarrDalsmynni (við Eyjafjörð)