Gjóska
Gjóska (gríska og eldra heiti á íslensku: tefra) er samheiti um loftborin, föst gosefni, sem þeyst hafa upp úr eldgíg, storknað að hluta til eða fullu á fluginu og fallið til jarðar.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e8/Pumice_santorini.jpg/220px-Pumice_santorini.jpg)
Gjóska skiptist eftir kornastærð í gjall, vikur og ösku. Hún er blöðrótt og létt í sér og getur flotið tímabundið á vatni (uns hún verður vatnsósa).
Jarðfræðingar nota gjósku í jarðvegslögum til að geta sér til um hegðun fyrri eldgosa.
Orðsifjar
breytaSigurður Þórarinsson bað Vilmund Jónsson landlækni að smíða íslenskt orð í stað gríska orðsins tefra sem samheiti yfir eldfjallaösku, vikur og gjall. Orðið kom fyrst út á prenti árið 1968 í tímaritinu Náttúrufræðingnum.
Heimildir
breyta- „Er til steinn sem flýtur?“. Vísindavefurinn.
- „Gjóskurannsóknir“. Sótt 25. nóvember 2005.
- „Orðabók Háskólans“. Sótt 25. nóvember 2005.
Tengill
breyta- Stjörnufræðivefurinn: Gjóska Geymt 22 júlí 2011 í Wayback Machine
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaSólstöðurKerfissíða:LeitErpur EyvindarsonMaurasýraCarles PuigdemontJónsmessaKerfissíða:Nýlegar breytingarÁgúst Bent SigbertssonBrúðkaupsafmæliFiann PaulListi yfir íslensk póstnúmerJónsmessunóttHljómsveitMúsíktilraunirWikipedia:HeimildirListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaHvalfjarðargöngXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Listi yfir íslensk mannanöfnSeinni heimsstyrjöldinEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024XXXHæsta hendinWikipedia:Almennur fyrirvariÍslandSteypustöðinGylfi Þór SigurðssonListi yfir landsnúmerListi yfir morð á Íslandi frá 200021. júníHalla TómasdóttirGuðmundur ElíassonListi yfir skammstafanir í íslenskuÞórólfur ÁrnasonWiki HowJakobsvegurinn