Diego Velázquez
Diego Rodríguez de Silva y Velázquez (6. júní 1599 – 6. ágúst 1660), venjulega kallaður Diego Velázquez, var spænskur listamaður og hirðmálari Filippusar 4. í Madríd. Velázquez var framúrskarandi portrettmálari, og er talinn einn fremsti listamaður barrokktímans.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b6/Self-portrait_by_Diego_Vel%C3%A1zquez.jpg/220px-Self-portrait_by_Diego_Vel%C3%A1zquez.jpg)
Þekktasta verk hans, hópmyndin Las Meninas, er af mörgum álitin fullkomnasta og flóknasta mannamynd vestrænnar myndlistar. Franski heimspekingurinn Michel Foucault taldi verkið marka tímamót í sögu Vesturlanda þar sem það gerir áhorfandann að aðalpersónu verksins.
Velázquez hefur haft mikil áhrif til okkar daga. Hægt er að greina áhrif hans í verkum Francisco Goya og Édouard Manet. Þekktir 20. aldar listamenn eins og Pablo Picasso og Francis Bacon hafa gert eigin útgáfur af verkum hans.