Beaufort-kvarðinn

Beaufort-kvarðinn eða vindstigakvarðinn er mælikvarði á vindstyrk þar sem vindhraði er flokkaður í 12 vindstig. Kvarðinn var hannaður árið 1806 af Francis Beaufort, breskum sjóliðsforingja og vindstigin voru skilgreind út frá sjólagi. Upprunalegi kvarðinn miðaðist ekki við vindhraða heldur aðstæður á sjó miðað við seglskútur, allt frá „rétt nægilegt til að stýra“ að „ekkert segl getur staðist“.

Kvarðinn var aðlagaður aðstæðum á landi frá því á 6. áratug 19. aldar og vindstigin bundin við snúninga á vindmæli. Hlutfallið milli vindstiga og snúninga var þó ekki staðlað fyrr en 1923 og mælikvarðanum var breytt lítillega síðar til að hann hentaði veðurfræðingum betur. Í dag eru hvirfilvindar stundum mældir samkvæmt kvarðanum með vindstig 12-16.

Áður var algengast að nota vindstig í veðurspám, en Veðurstofa Íslands gefur nú vindhraða í metrum á sekúndu (m/s).

VindstigVindhraði (hnútar)Vindhraði (m/s)Vindhraði (mi/klst)Meðalvindhraði (m/s)HeitiÖlduhæð (m)SjólagAðstæður á landiMynd
00<0,200,2Logn0Lygnt.Rólegt.
11-30,3-1,51-31,1Andvari0,1Gárur.Vindur hreyfir reyk.
24-61,6-3,34-72,5Kul0,3Litlar smáöldur.Vindur finnst á húð. Lauf skrjáfa.
37-103,4-5,48-124,7Gola0,6Stórar smáöldur.Lauf og smágreinar slást til.
411-165,5-7,913-186,7Stinningsgola1,0Litlar öldur.Ryk og laus pappír fýkur til. Litlar greinar hreyfast.
517-218,0-10,719-249,7Kaldi2,0Miðlungsstórar, langar öldur. Dálítið löður og úði.Minni tré svigna.
622-2710,8-13,825-3112,2Stinningskaldi3,0Stórar hvítfyssandi öldur og úði.Stórar greinar hreyfast. Erfitt að nota regnhlíf.
728-3313,9-17,132-3815,6Allhvasst4,0Sjór hrannast upp og löðrið myndar rákir.Heil tré hreyfast. Erfitt að ganga móti vindi.
834-4017,2-20,739-4618,9Hvassviðri5,5Nokkuð háar hvítfyssandi öldur og særok. Löðurrákir.Sprek brotna af trjám, Vindurinn tekur í bíla á ferð.
941-4720,8-24,447-5422,5Stormur7,0Háar öldur með þéttu löðri. Ölduhryggir hvolfast. Mikið særok.Minni skemmdir á mannvirkjum.
1048-5524,5-28,455-6326,7Rok9,0Mjög háar öldur. Yfirborð sjávar er hvítt og haugasjór. Skyggni minnkar.Tré rifna upp. Töluverðar skemmdir á mannvirkjum.
1156-6328,5-32,664-7230,8Ofsaveður11,5Gríðarlega stórar öldur.Almennar skemmdir á mannvirkjum.
12>63>32,7>72Á ekki viðFárviðri14+Risaöldur. Loftið fyllist af löðri og úða. Hafið er alveg hvítt. Mjög lítið skyggniMiklar almennar skemmdir á mannvirkjum.

Tenglar

breyta