Baltasar Kormákur

íslenskur leikari og leikstjóri

Baltasar Kormákur Baltasarsson (f. 27. febrúar 1966) er íslenskur leikari og leikstjóri. Foreldrar hans eru Kristjana Guðnadóttir Samper og spænski listamálarinn Baltasar Samper. Baltasar útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1990. Baltasar Kormákur og fyrrum eiginkona hans, Lilja Pálmadóttir ráku saman framleiðslufyrirtækið RVK Studios sem er afsprengi Blueeyes Productions og Sagnar ehf.[1] og hefur það framleitt ýmis sviðsverk, kvikmyndir og sjónvarpsefni.

Baltasar Kormákur Baltasarsson
Baltasar árið 2022
Fæddur27. febrúar 1966 (1966-02-27) (58 ára)
StörfLeikari
Kvikmyndaleikstjóri
Handritshöfundur
MakiSunneva Ása Weisshappel

Verk Baltasars breyta

Leikstjórn breyta

ÁrKvikmynd/ÞátturAthugasemdir
1996Áfram Latibær
2000101 ReykjavíkFyrsta sinn jafnframt sem leikari
2002Hafið
2005Skroppið til himna
2006Mýrin
2008Brúðguminn
2010Inhale
2012Contraband
Djúpið
2013The MissionarySjónvarpsmynd
2 Guns
2015Everest
ÓfærðFyrsti leikstýrði þátturinn
2016Eiðurinn
2018Adrift
2022Beast

Sem leikari breyta

ÁrKvikmynd/ÞátturHlutverkAthugasemdir og verðlaun
1992Veggfóður: Erótísk ástarsagaLass
Ævintýri á okkar tímumStuttmynd
1995AgnesNatan
1996DraumadísirGunnar
DjöflaeyjanBaddi
2000Englar alheimsinsÓli
101 ReykjavíkÞrösturFyrsta sinn jafnframt sem leikstjóri
2001SkrímsliArtaud
RegínaIvan
Minä ja MorrisonAskildsen
2003Stormy WeatherEinar
2008Reykjavík-RotterdamKristófer
2016EiðurinnFinnur

Tilvísanir breyta

  1. http://www.mbl.is/folk/frettir/2014/10/10/ansi_djusi_tilbod_komin_a_bordid/

Tenglar breyta

  Þetta æviágrip sem tengist leikurum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.