Meistaradeild Evrópu

Meistaradeild Evrópu (enska: UEFA Champions League) er árleg keppni í knattspyrnu. Keppnina heldur Knattspyrnusamband Evrópu fyrir öll bestu lið Evrópu. Sigurvegarar keppninnar hljóta Evrópumeistaratitilinn sem eru mjög virt verðlaun í knattspyrnuheiminum. Sigurvegarinn í keppninni fær þátttökurétt í Evrópska ofurbikarnum, sem og í heimsmeistarakeppni félagsliða. Meistaradeildinni var hleypt af stokkunum 1955 og hét þá Evrópukeppni félagsliða, en 1992 var keppninni breytt í Meistaradeildina. Sigursælasta lið keppninnar er Real Madrid sem hefur unnið fjórtán sinnum.

UEFA Champions League
Stofnuð1955; fyrir 69 árum (1955)
(endurnefnd 1992)
SvæðiEvrópa (UEFA)
Fjöldi liða32 (riðlakeppni)
80 (alls)
Undankeppni fyrirUEFA Super Cup
FIFA Club World Cup
Tengdar keppnirUEFA Europa League (2. stig)
UEFA Europa Conference League (3. stig)
Núverandi meistariFáni Englands Manchester City (1. titill)
Sigursælasta félagFáni Spánar Real Madrid (14 titlar)
VefsíðaOpinber vefsíða
Lönd sem hafa tekið þátt í riðlakeppni: Grænt. Lið sem ekki hafa tekið þátt í henni: Blátt.

Saga breyta

Bikar Meistaradeildarinnar

Keppni evrópskra knattspyrnuliða var ekki ný af nálinni. 1927 hófst Mitropabikarinn, en það var félagskeppni liða frá Austurríki, Ungverjalandi, Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu, Ítalíu, Sviss og Rúmeníu. Hún lagði hins vegar upp laupana við upphaf heimstyrjaldarinnar síðari. Eftir stríð var önnur slík keppni í gangi, miklu minni þó, og hét hún Coupe Latine. Í henni kepptu meistaralið frá Ítalíu, Frakklandi, Spáni og Portúgal. Hugmyndir um nýja Evrópukeppni með meistaraliðum frá sem flestum löndum í Evrópu fæddust snemma á sjötta áratugnum með Gabriel Hanot, íþróttafréttamanni L‘Équipe og fyrrverandi frönskum landsliðsmanni. Skipulagning Hanots var gerð opinber í blaðinu í desember 1954 og hófst keppnin sjálf á haustmánuðum árið eftir. 16 lið voru þátttakendur í fyrstu keppninni. Ekki sáu þó öll lið sér fært að taka þátt. T.d. meinaði Enska knattspyrnusambandið Chelsea þátttöku og var þá Gwardia Varsjá sent í staðinn. Sigurvegari var Real Madrid sem sigraði franska liðið Stade Reims í úrslitaleik 4-3. Real Madrid vann keppnina reyndar 5 fyrstu skiptin, árangur sem ekkert annað lið hefur tekist að gera. Suðurevrópsk lið (frá Spáni, Ítalíu og Portúgal) sigruðu keppnina allt til 1966, en 1967 tókst Glasgow Celtic að sigra, fyrst breskra liða. Aðeins tvisvar hefur liði tekist að sigra keppnina þrisvar í röð (eftir hina stórkostlegu byrjun Real Madrid): Ajax 1971-73 og Bayern München 1974-76. Mesta sigurganga liða frá einu landi var 1977-82 en þá sigruðu Liverpool, Nottingham Forest og Aston Villa til skiptis sex sinnum í röð. Einn sorglegasti viðburður keppninnar var úrslitaleikurinn 1985 á Heyselvellinum í Brussel milli Juventus og Liverpool en þá hrundi veggur og létust við það 39 manns. Afleiðingarnar voru þær að ensk lið voru útilokuð frá keppninni í fimm ár (Liverpool í sjö ár). Frá byrjun til ársins 1991 var fyrirkomulag keppninnar útsláttur, þ.e. heimaleikur og útileikur. Á leiktíðinni 1991-92 var í fyrsta sinn komið upp riðlum, þ.e. í átta liða úrslitum var liðunum komið fyrir í tveimur riðlum. Sigurlið riðlanna komust í úrslitaleikinn. 1992 var keppninni breytt í Meistaradeild Evrópu. Fyrsta árið (92-93) var fyrirkomulag keppninnar eins og á síðasta ári, þ.e. útsláttur og tveir riðlar. En 1994 var í fyrsta sinn komið upp riðlakeppni strax í upphafi. 16 lið voru sett í fjóra riðla. Efstu tvö liðin í riðlunum komust í átta liða úrslit. Í leiktíðunum 96-97 og 97-98 var liðunum fjölgað í 24 og léku þau í 6 riðlum. Efstu liðin í riðlunum og þau bestu sem lentu í öðru sæti komust í átta liða úrslit. Leiktíðina 1999-2000 var keppninni enn breytt. Að þessu sinni fengu 32 lið þátttökurétt og voru þau skipuð í átta riðla. Tvö efstu lið riðlanna mynduðu svo fjóra nýja riðla. Tvö efstu liðin þar komust í átta liða úrslit. Liðið í þriðja sæti fer í Evrópudeild UEFA en liðið í neðsta sæti fellur úr leik. Milliriðlarnir voru þó fljótt afnumdir, þannig að í dag hefst útsláttarkeppnin strax að lokinni fyrstu riðlakeppninni. Tólf af liðunum 32 voru meistarar í sínum eigin löndum en þar að auki sex lið sem lentu í 2. sæti. Afgangurinn, 10 lið, vinna sér þátttökurétt með forkeppni.

Úrslitaleikir breyta

ÁrSigurvegararStaða2. sætiVöllur
2022/2023
Nánar
Manchester City1-0 Inter MílanóAtatürk-ólympíuvöllurinn
Istanbúl, Tyrkland
2021/2022
Nánar
Real Madrid1-0 Liverpool FCStade de France,
París, Frakkland
2020/2021
Nánar
Chelsea FC1-0 Manchester CityEstádio do Dragao,
Porto, Portúgal
2019/2020
Nánar
Bayern München1-0 Paris Saint-GermainEstádio da Luz,
Lissabon, Portúgal
2018/2019
Nánar
Liverpool FC2-0 Tottenham HotspurWanda Metropolitano,
Madríd, Spánn
2017/2018
Nánar
Real Madrid3-1 Liverpool FCNSC Olimpiyskiy Stadium,
Kiev, Úkraína
2016/2017
Nánar
Real Madrid4-1 JuventusMillenium Stadium,
Cardiff, Wales
2015/2016
Nánar
Real Madrid1-1, 5-3 (v.) Atlético MadridSan Siro,
Mílanó, Ítalía
2014/2015
Nánar
FC Barcelona3-1 JuventusOlympiastadion ,
Berlín, Þýskaland
2013/14
Nánar
Real Madrid4-1 Atlético MadridEstádio da Luz ,
Lissabon, Portúgal
2012/13
Nánar
Bayern München2-1 Borussia DortmundWembley ,
London, England
2011/12
Nánar
Chelsea1-1, 6-5 (v.) Bayern MünchenWembley ,
London, England
2010/11
Nánar
FC Barcelona3-1 Manchester UnitedWembley ,
London, England
2009/10
Nánar
Inter Mílanó2-0 Bayern MünchenSantiago Bernabeu,
Madríd, Spánn
2008/09
Nánar
FC Barcelona2-0 Manchester UnitedStadio Olimpico,
Róm, Ítalía
2007/08
Nánar
Manchester United1-1, 6-5 (v.) ChelseaLuzhniki Stadium,
Moskva, Rússland
2006/07
Nánar
AC Milan2-1 LiverpoolÓlympíuleikvangurinn í Aþenu,
Aþena, Grikkland
2005/06
Nánar
FC Barcelona2-1 Arsenal FCStade de France,
París, Frakkland
2004/05
Nánar
Liverpool FC3-3, 3-2 (v.) A.C. MilanAtatürk Olympic Stadium,
Istanbul, Tyrkland
2003/04
Nánar
Porto3-0 MonacoArena AufSchalke,
Gelsenkirchen, Þýskaland
2002/03
Nánar
A.C. Milan0-0, 3-2 (v.) JuventusOld Trafford,
Manchester, England
2001/02
Nánar
Real Madrid FC2-1 Bayer 04 LeverkusenHampden Park,
Glasgow, Skotland
2000/01
Nánar
Bayern München1-1, 5-4 (v.) ValenciaSan Siro,
Mílanó, Ítalía
1999/2000
Nánar
Real Madrid FC3-0 ValenciaStade de France,
París, Frakkland
1998/99
Nánar
Manchester United FC2-1 Bayern MünchenCamp Nou,
FC Barcelona, Spánn
1997/98
Nánar
Real Madrid CF1 - 0 Juventus FCAmsterdam ArenA,
Amsterdam, Holland
1996/97
Nánar
Borussia Dortmund3-1 JuventusOlympiastadion,
Munich, Þýskaland
1995/96
Nánar
Juventus FC1-1, 4-2 (v.) AFC AjaxStadio Olimpico,
Róm, Ítalía
1994/95
Nánar
AFC Ajax1-0 AC MilanErnst Happel Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1993/94
Nánar
AC Milan4-0 FC BarcelonaÓlympíuleikvangurinn í Aþenu,
Aþena, Grikklandi
1992/93
Nánar
Olympique de Marseille1-0 AC MilanOlympiastadion,
Munich, Þýskaland
1991/92
Nánar
FC Barcelona1 - 0 (frl.) UC SampdoriaWembley,
London, England
1990/91
Nánar
Rauða stjarnan Belgrad0-0, 5-3 (v.) Olympique de MarseilleStadio San Nicola,
Bari , Ítalía
1989/90
Nánar
AC Milan1-0 S.L. BenficaPrater Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1988/89
Nánar
AC Milan4-0Steau BucharestCamp Nou,
Barcelona, Spánn
1987/88
Nánar
PSV Eindhoven0-0, 6-5 (v.) BenficaNeckarstadion,
Stuttgart, Þýskaland
1986/87
Nánar
FC Porto2-1 Bayern MünchenPrater Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1985/86
Nánar
Steaua Búkarest0-0, 2-0 (v.) FC BarcelonaSánchez Pizjuán,
Sevilla, Spánn
1984/85
Nánar
Juventus1-0 LiverpoolHeysel Stadium,
Brussel, Belgía
1983/84
Nánar
Liverpool1-1, 4-2 (v.) AS RomaStadio Olimpico,
Róm , Ítalía
1982/83
Nánar
Hamburger SV1-0 JuventusÓlympíuleikvangurinn í Aþenu,
Aþena, Grikkland
1981/82
Nánar
Aston Villa1-0 Bayern MünchenDe Kuip,
Rotterdam, Holland
1980/81
Nánar
Liverpool1-0 Real MadridParc des Princes,
París, Frakklandi
1979/80
Nánar
Nottingham Forest1-0 Hamburger SVSantiago Bernabeu,
Madrid, Spánn
1978/79
Nánar
Nottingham Forest1-0 MalmöOlympiastadion,
München, Þýskaland
1977/78
Nánar
Liverpool1-0 Club Brugge KVWembley,
London, England
1976/77
Nánar
Liverpool3-1 VfL Borussia MönchengladbachStadio Olimpico,
Róm , Ítalía
1975/76
Nánar
Bayern München1-0 AS Saint-ÉtienneHampden Park,
Glasgow, Skotland
1974/75
Nánar
Bayern München2-0 Leeds UnitedParc des Princes,
París, Frakkland
1973/74
Nánar
Bayern München1-1, 4-0 (v.) Atlético MadridHeysel Stadium,
Brussel, Belgía
1972/73
Nánar
Ajax1-0 JuventusCrvena Zvezda Stadium,
Belgrade, Júgóslavía
1971/72
Nánar
Ajax2-0 Inter MílanóDe Kuip,
Rotterdam, Holland
1970/71
Nánar
Ajax2-0 PanathinaikosWembley,
London, England
1969/70
Nánar
Feyenoord2-1 (frl.) CelticSan Siro,
Mílanó , Ítalía
1968/69
Nánar
AC Milan4-1 AjaxSantiago Bernabeu,
Madrid, Spánn
1967/68
Nánar
Manchester United4-1 (frl.) S.L. BenficaWembley,
London, England
1966/67
Nánar
Celtic2-1 Inter MílanóEstádio Nacional,
Oeiras, Portúgal
1965/66
Nánar
Real Madrid2-1FK PartizanHeysel Stadium,
Brussel, Belgía
1964/65
Nánar
Inter Mílanó1-0 BenficaSan Siro,
Mílanó , Ítalía
1963/64
Nánar
Inter Mílanó3-1 Real MadridPrater Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1962/63
Nánar
AC Milan2-1 BenficaWembley,
London, England
1961/62
Nánar
Benfica5-3 Real MadridOlympisch Stadion,
Amsterdam, Holland
1960/61
Nánar
Benfica3-2 BarcelonaWankdorf Stadium,
Bern, Sviss
1959/60
Nánar
Real Madrid7-3 Eintracht FrankfurtHampden Park,
Glasgow, Skotland
1958/59
Nánar
Real Madrid2-0 Stade de Reims-ChampagneNeckarstadion,
Stuttgart, Þýskaland
1957/58
Nánar
Real Madrid3-2 (frl.) AC MilanHeysel Stadium,
Brussel, Belgía
1956/57
Nánar
Real Madrid2-0 FiorentinaSantiago Bernabeu,
Madrid, Spánn
1955/56
Nánar
Real Madrid4-3 Stade de Reims-ChampagneParc des Princes,
París, Frakkland

Tölfræði breyta

Sigurliðin breyta

Listi yfir öll sigurlið Meistaradeildarinnar frá upphafi.

RöðSigurliðTitlarÁr2. sætið
1Real Madrid141956, 1957, 1958, 1959, 1960, 1966, 1998, 2000, 2002, 2014, 2016, 2017, 2018, 2022(3) 1962, 1964, 1981
2AC Milan71963, 1969, 1989, 1990, 1994, 2003, 2007(4) 1958, 1993, 1995, 2005
3-4Liverpool61977, 1978, 1981, 1984, 2005, 2019(4) 1985, 2007, 2018, 2022
Bayern München61974, 1975, 1976, 2001, 2013, 2020(5) 1982, 1987, 1999, 2010, 2012
5Barcelona51992, 2006, 2009, 2011, 2015(3) 1961, 1986, 1994
6Ajax41971, 1972, 1973, 1995(2) 1969, 1996
7-8Inter Milan31964, 1965, 2010(2) 1967, 1972
Manchester United31968, 1999, 2008(2) 2009, 2011
9-13Juventus21985, 1996(7) 1973, 1983, 1997, 1998, 2003, 2015, 2017
Benfica21961, 1962(5) 1963, 1965, 1968, 1988, 1990
Nottingham Forest21979, 1980(0)
Porto21987, 2004(0)
Chelsea22012, 2021(1) 2008
14-22Glasgow Celtic11967(1) 1970
Hamburg11983(1) 1980
Steaua Búkarest11986(1) 1989
Olympique de Marseille11993(1) 1991
Feyenoord11970(0)
Aston Villa11982(0)
PSV Eindhoven11988(0)
Rauða stjarnan Belgrad11991(0)
Borussia Dortmund119972013 (1)
Manchester City12023

Sigurlið eftir löndum breyta

Uppfært maí. 2022

RöðSigurlandSigrarFj. sigurliðaHve oft í 2. sæti
1Spánn18211
2England15610
3Ítalía12317
4-5Þýskaland8310
4-5Holland632
6Portúgal425
7-10Frakkland116
Skotland111
Rúmenía110
Júgóslavía111

Leikjahæstu menn breyta

Uppfært 17/5 2023

RöðLeikmaðurLeikirTímabil
1Cristiano Ronaldo1832003-
2Iker Casillas1771999-2019
3Lionel Messi1612005-
4Xavi1511998-2015
5Karim Benzema1502006-
5Raúl1421995-2011
6Ryan Giggs1411993-2014
8Thomas Müller1402009-
10Sergio Ramos1352005-
11Toni Kroos1332008-
12Manuel Neuer1312007-
13Andrés Iniesta1302002-2018
14Gerard Piqué1262004-
15Sergio Busquets1272008-
16Clarence Seedorf1251994-2012
17Paul Scholes1241994-2013
17Gianluigi Buffon1241997-
17Zlatan Ibrahimovic1242001-
18Roberto Carlos1201997-2007

Markahæstu menn breyta

Uppfært 17/5 2023.

RöðLeikmaðurMörkLeikirTímabil
1Cristiano Ronaldo1421822003-
2Lionel Messi1291612005-
3Robert Lewandowski901102011-
4Karim Benzema901502006-
5Raúl711421995-2011
6Ruud van Nistelrooy56731998-2009
7Thomas Müller531402009-
8Thierry Henry501121997-2012
9Alfredo di Stefano49581955-1964
10Andriy Shevchenko481001994-2012
10Zlatan Ibrahimovic481212001-

Íslendingar sem hafa spilað í meistaradeildinni breyta

[1]

Heimildir breyta

Tilvísanir breyta

  1. Yngstur Íslendinga í Meistaradeild Evrópu Skessuhorn, skoðað, 27. október 2020