Kákasus
Kákasus er svæðið milli Svartahafs og Kaspíahafs og inniheldur Kákasusfjöll og láglendið umhverfis þau. Almennt er að telja til Kákasus löndin Armeníu, Georgíu, Aserbaídsjan og norðurhlíðar fjallanna í Rússlandi: Krasnódar, Stavrópol og sjálfsstjórnarhéruðin Adygea, Kalmikía, Karasjaí-Sjerkessía, Kabardínó-Balkaría, Norður-Ossetía, Ingúsetía, Téténía og Dagestan.
Þrjú lönd á svæðinu gera tilkall til sjálfstæðis en eru ekki viðurkennd af alþjóðasamfélaginu: Abkasía, Nagornó-Karabak og Suður-Ossetía.
Landfræðilega er Kákasus hluti Asíu en er oft talið til Evrópu af sögulegum og menningarlegum ástæðum.
Þá telst Elbrusfjall hæsta fjall Evrópu.
🔥 Top keywords: ForsíðaHalla Hrund LogadóttirKerfissíða:LeitKerfissíða:Nýlegar breytingarCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir morð á Íslandi frá 2000Sumardagurinn fyrstiMorð á ÍslandiListi yfir skammstafanir í íslenskuFiann PaulListi yfir íslensk póstnúmerListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaGylfi Þór SigurðssonÍslandHéðinn SteingrímssonListi yfir íslensk mannanöfnHjálp:EfnisyfirlitBaldur ÞórhallssonReykjavíkVigdís FinnbogadóttirAriel HenryJón GnarrForsetakosningar á Íslandi 2016FæreyjarBubbi MorthensAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)Halla TómasdóttirListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999UnuhúsLögbundnir frídagar á ÍslandiSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirUngmennafélagið FjölnirBrúðkaupsafmæliÓlafur Ragnar GrímssonKatrín Jakobsdóttir