Afríkanska

Afríkanska (afríkanska: Afrikaans) er vesturgermanskt og indóevrópskt tungumál sem er talað í Suður-Afríku og Namibíu. Hún er opinbert tungumál í Suður-Afríku og er töluð af yfir 16 milljónum manna. Afríkanska hefur þróast úr hollensku. Orðið Afrikaans þýðir hollenska sem er töluð í Afríku eða bara afríkanska. Fólk sem talar afríkönsku skilur hollensku. Á afríkönsku er IJ úr hollensku breytt í Y. (dæmi: hol: IJslands, afr: Yslands). Munurinn á afríkönsku og hollensku felst í ýmsum atriðum í málfræði og stafsetningu. Afríkanska hefur dreifða landfræðilega notkun sem opinbert tungumál, auk þess að vera töluð víða sem annað eða þriðja tungumál.

Afríkanska
Afrikaans
MálsvæðiSuður-Afríka
HeimshlutiSunnanverð Afríka
Fjöldi málhafa16 milljónir
ÆttIndóevrópskt

 Germanskt
  Vesturgermanskt
   Lággermanskt
    Lágfrankískt
     afríkanska

SkrifleturLatneskt stafróf
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Suður-Afríka
Stýrt afDie Taalkommissie
Tungumálakóðar
ISO 639-1af
ISO 639-2afr
SILAFR
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Það eru þrjár mállýskur í afríkönsku. Höfðaborg er sú borg í Suður-Afríku þar sem flest fólk hefur afríkönsku að móðurmáli og er afríkanska algengasta tungumálið þar.

Þrátt fyrir að hollenska og afríkanska séu gagnkvæmt skiljanlegar og því ef til vill réttlætanlegt að nefna hana hollenska mállýsku er nokkur málfræðimunur. Þannig hefur til dæmis málfræðileg afkynjun nafnorða átt sér stað í afríkönsku en hollenska hefur hvorugkyn og samkyn. Í hollensku teljast um 90 % nafnorða til samkyns þar sem greinirinn -de er notaður, en um 10 til hvorugkyns þar sem greinirinn -het er notaður. (het alfabet, de telegraf).

Het er sama orð og íslenska hið og enska it. Í afríkönsku enfaldlega var sett -de í staðinn fyrir -het og þar með einfölduð málfræðin.Sagnorð hafa engar persónuendingar og munur veikra og sterkra sagna er horfinn.

Nokkrar setningar og orð breyta

AfrikaansÍslenska
HalloHalló
GoeiedagGóðan daginn
GoeienaandGott kvöld
Hoe gaan dit met jou?Hvað segirðu gott?
Dit gaan goed met my.Ég segi bara fínt
DankieTakk
AssebliefGerðu svo vel
Ja
NeeNei
Praat jy Yslands?Talarðu íslensku?
Ek praat net 'n bietjie Afrikaans.Ég tala bara smá afríkönsku.
Ek verstaan nie.Ég skil ekki.
My naam is ...Ég heiti ...
Tot siensBless

Tenglar breyta

Germönsk tungumál
Indóevrópsk tungumál
Tungumál: Afríkanska | Danska | Enska | Færeyska | Hollenska | Íslenska | Jiddíska | Lúxemborgska | Norska | Sænska | Þýska
Mállýskur: Alemanníska | Alsatíska | Flæmska | Frísneska | Nýlendualemanníska | Lágþýska | Limburgíska
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Wiki How
Wikipedia: Afríkanska, frjálsa alfræðiritið